Það var ekki auðmýkt sem einkenndi viðbrögð Árna Mathiesens við áliti umboðsmanns Alþingis á stjórnarathöfn þeirri er Árni skipaði Þorstein Davíðsson í embætti héraðsdómara fyrir rúmu ári. Í áliti sem umboðsmaður birti á næst síðasta degi nýliðins árs fann hann ýmsa meinbugi á embættisfærslu Árna sem ekki verða raktir hér.
Árni sér aldrei ástæðu til að iðrast þegar hann er spurður. Hvað þá segja af sér.
Hann var þó haldinn sektarkennd þegar hann sendi umboðsmanni umbeðin gögn um málið á nýliðnu ári og reyndi að verjast. Hnjóðaði í embættið sem hlyti að hafa komist að niðurstöðu fyrirfram gegn sér. Sennilega erÁrna slétt sama um embætti umboðsmanns sem sérstaklega er sett á fót í siðuðum lýðræðisþjóðfélögum til þess að vernda borgarana gegn valdníðslu og afglöpum stjórnarherra.
Árni Mathiesen hófst til metorða innan Sjálfstæðisflokksins og hefur greitt gjald sitt fyrir það svo sem hefð er fyrir meðal innvígðra og innmúraðra.Hann hefur greitt fyrir með hollustu sinni og hlýðni og ráðið son flokkshöfðingjans Davíðs Oddssonar í embætti héraðsdómara og gefið ígrunduðum leikreglum samfélagsins þar með langt nef. (Vart þarf að taka fram að þessi pistill hefur ekkert með umræddan Þorstein að gera.). Árni hefur greitt gjaldið og þarf ekki að svara fjölmiðlum eða kjósendum öðru en "Nei ég sé ekki ástæðu til að segja af mér". Einu sinni enn.
Skattgreiðendur eiga það hins vegar á hættu að þurfa að greiða öðrum umsækjendum, sem metnir voru hæfari, skaðabætur komi til málaferla þeirra við Árna Mathiesen sem tekur að sér að vera skyndidómsmálaráðherra fyrir Flokkinn þegar mikið liggur við. Slík málaferli væru eins og til að snúa hnífnum í sárinu sem þjóðin hlaut í bankarhuninu og rekja má til andvaraleysis stjórnarherranna að nokkru leyti.
Hvað skyldi skipan Ólafs Barkar Þorvaldssonar, frænda Davíðs Oddssonar, í Hæstarétt hafa kostað skattborgara þessa lands á sínum tíma vegna málareksturs við aðra umsækjendur sem brotið var gegn? Björn Bjarnason dómsmálaráðherra getur upplýst það.
Árni Mathiesen véfengir ekki það fyrirgreiðslukerfi frændhyglinnar sem hóf hann til vegs. Hann lætur kröfuna um réttlæti og lýðræði sem vind um eyru þjóta.
Árna væri hollast að leggja sig eftir þeim nýja straumi sem Karl Blöndal, blaðamaður, orðar vel í frábærri grein í Morgublaðinu á gamlársdag. Þar segir meðal annars:
"Ríkisstjórn Grikklands komst til valda með fyrirheitum um að binda enda á klíkuskap og vinavæðingu og koma á verðleikasamfélagi. Hún sveik þau fyrirheit og þegar lögregluþjónn varð ungum manni að bana sauð upp úr. Almenningur gekk berserksgang um allt Grikkland. Miðborg Aþenu var lögð í rúst, bílar voru brenndir, samfélagið nötraði.
Á Íslandi er nú komin fram sterk krafa um verðleikasamfélag. Þessi krafa kemur úr öllum áttum og almenning greinir á um hvaða pólitísku leið eigi að fara til að ná henni fram. En krafan er skýr: á Íslandi eiga verðleikar að ráða för, ekki tengsl eða flokkur."
Skyldi Samfylkingin ætla að koma á verðleikasamfélagi eða dansa áfram spillingardansinn með Árna Mathiesen?
Blogg
Hrokafull áramótakveðja Mathiesens
14:42 › 1. janúar 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
