Engin leið er að halda fram að Ögmund Jónasson, þingmaður VG, sé lélegur húmoristi. Meðfylgjandi mynd er að finna inni á vefsíðu hans www.ogmundur.is , dálítið búið að fikta við hana eins og greint hefur verið frá annars staðar á www.dv.is. Sýnir hún Guðlaug Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra taka í höndina á Gaddafi, Lýbíueinvaldi.
Ögmundur berst gegn einkarekstraráætlunum ríkisstjórnarinnar á sviði heilbrigðismála. Hann blæs á frumvarp Guðlaugs um nýja sjúkratryggingastofnun sem aðskilja á kaupendur og seljendur heilbirigðisþjónustu. Öll rök hnígi að því að þetta sé fyrsta, nei annað eða þriðja, skrefið í því að einkavæða heilbrigðiskerfið með sömu hörmulegu afleiðingunum og í Bretlandi þar sem þjónustan hefur versnað og orðið dýrari samfara því að einkafyrirtæki í heilbrigðisþjónustu stingi æ stærra hlutfalli skattfjár í eigin vasa í formi arðgreiðslna.
Afraksturinn af öllu bröltinu er ójafnari þjónusta þar sem hinir ríku sogast að fyrirtækjum sem dugleg eru við að henda út “óarðbærum” sjúklingum eins og gamalmennum og fátæklingum.
Gaddafi smjaðrar nú fyrir erlendu fé og vill opna Lýbíu fyrir einkavæðingarformúlum hamfarakapítalismans sem á rætur að rekja til frjálshyggjudrengjanna hans Hannesar Hólmsteins og Friedmans við Chicagoháskólann. Þeir sem lesið hafa “The Shock Doctrine” eftir bandaríska metsöluhöfundinn Naomi Klein vita að frjálshyggjuhagfræðin og lýðræði getur ekki farið saman og hefur ávallt mulið undir einræðishneigðir myndað gjá milli fátækra og ríkra. Lýðræði og frjálshyggja (líka í heilbrigðisþjónustu) er eins og olía og vatn, hrindir hvort öðru frá sér.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
