ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Valdaleysi Samfylkingarinnar

12:23 › 7. september 2008

Krónan hefur fallið um 35 til 45 prósent frá áramótum. Verðbólgan nálgast 15 prósent. Stærsta fjárskuldbinding á lífsskeiði flestra manna, íbúðalán, hækkar upp úr öllu valdi. Þannig fer einnig um aðrar nauðsynjar.


Gengisfelling er miskunnarlaus og hraðvirk leið til þess að lækka kaup almennings. Hinu megin við borðið sitja bankastjórar með axlabönd, kúta og belti og beinlínis græða á gengisfellingum og verðbólgu, verðtryggingu og okurvöxtum. Hugsum okkur þúsund prósenta verðbólgu og hversu auðvelt almenningur ætti með greiða af verðtryggðum húsnæðislánum við slíkar aðstæður. Sá sem hlynntur er verðtryggingu í þágu lánardrottna dregur taum sparifjáreigenda og lífeyrissjóða á kostnað fólks sem elur upp börn og hefur ekkert val um að koma yfir sig þaki. Áhættu er ekki dreift milli skuldara og lánardrottna.


Í ríkisstjórn sitja jafnaðarmenn auðum höndum. Þeir létu kjósa sig til þess standa vörð um kjör og frelsi borgaranna, jöfnuð og jafnrétti. Þeir sitja auðum höndum meðan hamfarakapítalismi Geirs og heimastjórnardeildar Davíðs og Björns sligar heimilin og gerir þau að ánauðugum þrælum fjármálakerfis á brauðfótum. 


Fínt segja repúblíkanarnir í Sjálfstæðisflokknum sem leggjast gegn Evrópusambandinu og evru og ráða því sem mestu máli skiptir um borð í þjóðarskútunni. Þeir hafa verkstjórann Geir Haarde. Þeir hafa fjármálaráðuneytið, heilbrigðismálin, menntamálin, dómsmálin, sjárvarútveginn og landbúnaðinn. Við hliðina á þessu er utanríkisráðuneytið og öryggisráð SÞ tilgerðarlegt punt sem engu máli skiptir fyrir velferð borgaranna. Ingibjörg og hennar fólk segir ekki neitt og tekur þannig í reynd undir leyndan boðskap og markmið Sjálfstæðisflokksins: “Sjokkerum” kjósendur þar til þeir verða meyrir og meðfærilegir og fallast á að einkavæða orkulindirnar, heilbrigðiskerfið,skólana og Íbúðalánasjóð og lækka skatta hinna ríku.


Vel á minnst: Voru bandarísk stjórnvöld ekki að þjóðnýta tvo helstu íbúðalánasjóði landsins í einkaeign? Sem standa undir helmingi íbúðalána í landinu? Hvernig stendur á því? Fór græðgisvæðing hinna ríku með greiðslugetu almúgans?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?