ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Lækningin verri en sjúkdómurinn

14:31 › 12. september 2008


Gefum okkur að tilgangur Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra með nýjum lögum um sjúkratryggingar sé málefnalegur og til þess fallinn að nýta skattfé betur en áður í heilbrigðiskerfinu. Gefum okkur að lögin séu líka í anda stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar þar sem markið er sett á "nútímavæðingu" stjórnsýslunnar. Gefum okkur ennfremur að sú aðferð að skilgreina ríkið sem kaupanda heilbrigðisþjónustu og einkafyrirtækin sem seljendur verði notuð til að gera kerfið gegnsærra og auka kostnaðar- og gæðavitund. Gefum okkur þar að auki að það sé satt sem Guðlaugur sagði á Rás 2 síðastliðinn þriðjudag að markmið frumvarpsins sé ekki að draga úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu. Gefum okkur loks að það sé satt sem hann sagði að breytingarnar sem gera á með frumvarpinu hafi ekkert með einkavæðingu að gera.
Að gefnu öllu þessu: Hvernig stendur á því að ungir jafnaðarmenn, þeir sem erfa eiga Samfylkinguna, leggjast gegn svo göfugum markmiðum? Telja þeir að Guðlaugur, Ingibjörg Sólrún og Ágúst Ólafur séu að reyna að lækna heilbrigt heilbrigðiskerfi? Telja þeir að lækningin verði verri en sjúkdómurinn? Ungir jafnaðarmenn segja að grunnreglur stjórnsýsluréttarins, svo sem jafnræðisreglan, meðalhófsreglan, lögmætisreglan og hæfisreglur, muni ekki gilda um starfsemina verði einkaaðilum falinn rekstur heilbrigðisstofnana.


Sakleysislegt  yfirborð
Allyson Pollock er sérfræðingur um einkarekstur og einkavæðingu breska heilbrigðiskerfisins. Hún hefur haldið fyrirlestur hér á landi í boði BSRB. Morgunblaðið hefur útmálað hana sem gæludýr vinstri gagnrýnenda í Bretlandi. Minna má á að samtök atvinnurekenda og verslunar hafa boðið ýmsum sjónhverfingamönnum til landsins undanfarin misseri til að lofa hamfarakapítalismann og einkavæðinguna. Er það gagnrýnivert?
Eftir að hafa kynnt sér aðstæður hérlendis fullyrðir Pollock að frumvarp Guðlaugs sé liður í markaðsvæðingu íslenska heilbrigðiskerfisins. Hún varar við því að gera heilbrigðisþjónustuna að markaðsvöru. Þannig missi almannavaldið tök sín á því hvernig skattfé þeirra sé raunverulega varið. Pukur og ógagnsæi taki völdin þegar vaxandi hluti skattfjár almennings umbreytist í arð einkafyrirtækja. Hún fullyrðir auk þess að með hliðstæðum breytingum í Englandi á sínum tíma hafi stjórnunarkostnaður í heilbrigðiskerfinu tvöfaldast. Um 30 til 50 prósent fjármagns í bandaríska heilbrigðiskerfinu fari í viðskiptakostnað en ekki lækningar eða eiginlega þjónustu við sjúka. Vill Samfylkingin líkja eftir einkarekstri bandaríska kerfisins sem kostar skattborgarana í senn meira en gerist í Evrópu en skilur auk þess 50 milljónir íbúa eftir á köldum klaka og án sjúkratrygginga?
Pollock segir að sérhver breyting sem stjórnvöld gerðu á leið til einkarekstrar og einkavæðingar í bresku heilbrigðisþjónustunni hafi ævinlega verið kynnt sem minniháttar tæknilegar breytingar. Notuð voru fín hugtök eins og "samvinna einkaframtaks og hins opinbera", "nútímavæðing", "meiri verðmæti fyrir peninginn" og svo framvegis. Frumvarp Guðlaugs sé af sama toga og  gefi ráðherranum lausan tauminn við útgáfu stefnumarkandi reglugerða. Allyson Pollock er sem sagt sannfærð um að sakleysislegar breytingar á íslenska heilbrigðiskerfinu séu liður í þróun sem gætir víða og leitt hefur til kostnaðarhækkana og ójafnaðar.


Hálfsannleikur
Það þýðir ekkert fyrir íslenska repúblíkana eða bláeyga markaðshyggjumenn í Samfylkingunni að stimpla breska háskólaprófessorinn Allyson Pollock sem ómarktækan vinstrigagnrýnanda. Virtir bandarískir hagfræðigúrúar  á borð við Jeffry Sachs taka í sama streng og hún. Eftirfarandi skrifaði Sachs í Daily Times 23. apríl 2006: "Það er kaldhæðnislegt að í Bandaríkjunum, þar sem lausnir einkamarkaðarins eru í fyrirrúmi, er kerfið svo óskilvirkt að Bandaríkjamenn greiða 14 prósent af þjóðartekjum sínum til heilbrigðismála en Norðurlöndin aðeins 11 prósent."
Ögmundur stundar upplýsandi stjórnarandstöðu. Guðlaugur Þór talar hálfsannleik sem alltaf hefur einkennt einkavæðingaráráttuna.

Kjallaragrein sem birtist í DV 11. september 2008



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?