ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Guðlaugur "out"

10:54 › 11. september 2008

Fyrir 125 árum gekkst Ottó von Bismarck fyrir því að sett var almenn sjúkratryggingalöggjöf í Þýskalandi, sem talist getur sú fyrsta sinnar tegundar í hinum iðnvædda heimi. Sjúkratryggingakerfinu var komið á fót undir vaxandi þrýstingi frá ört stækkandi fjöldahreyfingu fátækra Þjóðverja sem kröfðust aukins jafnaðar.


Járnkanslarinn hafði hugboð um að ef ríkisvaldið sýndi ekki félagslega ábyrgð væri úti um friðinn í landinu.


Gullöld blandaða hagkerfisins eftir seinni heimstyrjöldina hvíldi meðal annars á því að iðnjöfrar Bandaríkjanna höfðu með semingi samþykkt endurreisnarstefnu Roosvelts forseta (New Deal). Enn á ný undan þrýstingi frá vinstri og fjöldasamtökum launamanna. Halda varð friðinn. Gullöld blandaða hagkerfisins fram að andbyltingu frjálshyggjunnar byggðist einmitt á eftirgjöf harðdrægra kapítalista vegna þrýstings frá launafólki. Hvöss horn óhefts kapítalisma voru hefluð af í samvinnu atvinnulífs og hins opinbera. Réttindi launamanna voru tryggð, sjúkratryggingakerfi komið á fót og stuðningur aukinn við fátæka og aldraða.


Ólafur Thors, leiðtogi Sjálfstæðisflokksins um miðja síðustu öld, var einnig meðvitaður um þessar aðstæður og tók þátt í uppbyggingu sjúkratryggingakerfis með vinstrimönnum eftir stríð.


Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra hefur ekkert af þessu í huga þegar hann vill “samningavæða” heilbrigðiskerfið með nýjum lögum um sjúkratrygginar. Sennilega veit hann ekki að hagvöxtur var meiri í öllum hinum vestræna heimi og víðar um heim á gullaldarárum blandaða hagkerfisins en á gullöld frjálshyggjunnar sem er að renna sitt skeið á enda. Þjóðnýting stærstu íbúðalánasjóða Bandaríkjanna færir okkur heim sanninn um að hamfarakapítalismi frjálshyggjunnar er að renna sitt skeið á enda. Frægir bankastjórar, eins og Joseph Ackermann hjá Deutsche Bank, viðurkenna nú vanmátt óhefts markaðar.


Frjálshyggu-Guðlaugur verður gamaldags og “out” eftir eitt kjörtímabil. Það verður Samfylkingin líka ef hún minnist ekki tilgangs síns og uppruna undir hæl Guðlaugs og fjármálaráðuneytisins.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?