"Hrokafullir íslenskir útrásarvíkingar eru nú með timburmenn eftir að hafa nýlega keypt fyrirtæki í Skandinavíu og Bretlandi fyrir lánsfé."
Þannig kemst Sverker Sörlin, prófessor í umhverfissögu og rithöfundur, að orði í Dagens Nyheter um enska þýðingu Draumalandsins eftir Andra Snæ Magnason. Björk ritar formála ensku þýðingarinnar.
Sörlin segir að margir Íslendingar segi með sjálfum sér "loksins". Loksins tekur þetta hraunfljót af óhefluðu kaupæði enda og og lúxusjepparnir fá samkeppni frá smábílum.
Íslendingar ættu að vara sig á því að gera landið ekki að afdrepi fyrir þorpara þar sem græðgin er aflgjafinn og tækifærismennskan stýrið.
Dagens Nyheter segir að landinn telji sjálfsagt að gera sér mat úr náttúruauðlindunum. Það sé nánast sjálfgefið að það skuli gert. Meira að segja erfðamengi mannsins er gert að söluvarningi. Á þeim miðum togi Kári Stefánsson og DeCode.
Verðmæti íslensku jöklanna eykst eftir því sem þeir bráðna meira vegna hlýnunar jarðar. Jökulvötnum er breytt í raforku sem seld er á hraksmánarlegu verði til alþjóðlegra iðnrisa á borð við Alcoa.
Sænska blaðið DN gerir að umtalsefni að íslenska þjóðin búi við vaxandi sjálfsmyndarvanda. Annars vegar séu þeir sem ævinlega halla sér að gömlu lausnunum og efnahagsúrræðunum sem bjarga eiga þjóðinni frá örbirgð enn eina ferðina og tryggja henni sjálfstæði. Þetta eru þeir sem nýta vilja orkuna í þágu stóriðju. En í þessu felst þvingandi endurtekning á gömlum lausnum sem verður æ erfiðari viðfangs; að verða sterkur og sjálfstæður með því að tæma náttúruauðlindirnar.
Svo eru það hinir sem vilja ganga annan veg, þann veg sem Andri Snær bendir á. Eftirspurn eftir Draumalandinu bendi til þess að þeim fari fjölgandi.Svo þurfa æ fleiri fyrirtæki að breyta orkuímynd sinni, gera hana vistvænni. Og því ekki að laða að smærri háþróaða orkukaupendur sem bera þekkingu inn í landið frekar en að treysta á nokkra stóra alþjóðlega risa. Þeir borga líka meira.
Sörlin segir að endingu að kannski þurfi Ísland ekki að verða athvarf skúrka. Í þingkosningunum 2011 losi þjóðin sig mögulega við þá hægri-miðjustjórn sem einblínt hafi á auðlindirnar undanfarin 20 ár.
Blogg
Dreamland Andra Snæs
23:13 › 7. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
