Stjórn Landsvirkjunar bíður það verkefni að ráða Árna Mathíesen dýralækni sem arftaka Friðriks Sophussonar, en hann stígur senn upp úr forstjórastóli hjá orkufyrirtækinu. Staðan var til málamynda auglýst laus til umsóknar nú um helgina, en staðan er - eins og allir vita - eyrnamerkt valdakerfi Sjálfstæðisflokksins.
Það kæmi sér vitanlega best fyrir Árna fjármálaráðherra að búið verði að ganga frá ráðningunni áður en umboðsmaður Alþingis segir álit sitt á embættisveitingu hans fyrir síðustu jól. Þá réði Árni, settur skyndidómsmálaráðherra, Þorstein, son Davíðs Oddssonar, í stöðu héraðsdómara.
Vonandi sýnir Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, þá lágmarkskurteisi að halda aftur af sér þar til ráðningarferlið er yfirstaðið. Það væri brot á almennum siðareglum og ógnun við framgang og viðhald valdakerfis Flokksins að vera með frekju, framhleypni og ofanígjöf við Árna við slíkar aðstæður.
Nú er sem sagt komið að því að innleysa þóknun fyrir þann greiða og þá auðsveipni sem Árni sýndi með því að fara gegn löglegum og skynsamlegum reglum opinberrar stjórnsýslu er hann réði son Aðal í embætti sem fyrir þremur árum skipaði sjálfan sig í embætti seðlabankastjóra og hækkaði mánaðarlaun sín með handafli um 250 þúsund kall eða svo í leiðinni.
Í auglýsingu um starfið segir að þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu sé æskileg. Ráðning Þorsteins dugar nánast ein til þess að fleyta Árna inn í embætti forstjóra Landsvirkjunar. Ekki skaðar dýralæknismenntunin og engum dettur í hug að væna þennan eiganda í Byr um vankunnáttu á sviði fjármála.
Allt þetta gerist með stuðningi Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Bryndísar Hlöðversdóttur, Össurar Skarphéðinssonar og annarra Samfylkingarmanna sem að mestu eru búin að gleyma því sem þau sögðu í stjórnarandstöðu fyrir tveimur árum.
Ps.Kannski sést “Orðinu á götunni” á eyjunni yfir það að með því að ráða Huldu Gunnlaugsdóttur (krata frá Noregi eins og "Orðið á götunni" vill hafa það) sem forstjóra Landspítalans sé verið að búa í haginn fyrir Árna Mathiesen í forstjórastöðu hjá Landsvirkjun.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
