ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Hamfarakapítalistinn

13:23 › 27. ágúst 2008

Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur lag að einkavæða Íslandspóst, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, ÁTVR og Ríkisútvarpið. Hann er þreyttur á aðgerðarleysinu.


Það er athyglisvert að Sigurður Kári skuli leggja þetta til nú þegar þjóðin örvæntir vegna himinhárrar verðbólgu, ofurvaxta, aukinnar greiðslubyrði og þyrfti helst á áfallahjálp að halda.


En þetta er alveg eftir kenningu frjálshyggjunnar eins og Naomi Klein, höfundur “The Shock Doctrine” heldur fram um gammana í Hvíta húsinu. Gúruar frjálshyggjunnar á borð við Milton heitinn Friedman héldu því til haga að mestar líkur væru á að gera róttækar breytingar á þjóðfélagskerfinu þegar fjöldinn væri meir og mjúkur í kjölfar náttúruhamfara, styrjalda, hryðjuverka eða skyndilegrar efnahagskreppu. Þá hallaði fjöldinn sér frekar að “sterkum” mönnum með ráð undir rifi hverju.


Naomi Klein kallar þetta hamfarakapítalisma. Eitt skuggalegasta dæmið sem hún rekur í bók sinni er frá því fellibylurinn Katarina orsakaði hamfaraflóð í New Orleans árið 2005 sem kostaði fjölda mannslífa. Tugþúsundir misstu heimili sín og hundruð þúsunda íbúa flúðu úr borginni. Richard Baker, kunnur þingmaður repúblíkana, sagði af þessu tilefni við nokkra lobbyista: “Loksins hefur tekist að hreinsa burt félagslegar íbúðir í New Orleans. Guði tókst það sem okkur tókst ekki.”


Joseph Chanizaro, auðugur verktaki í borginni sá tækifærin í ónýtum skólum og eyðilögðum byggingum: “Við höfum hreint borð. Á þessu hreina borði liggja margvísleg tækifæri.”


Hamfaraástandið var notað til þess að leggja nánast með öllu niður grunnskóla á vegum hins opinbera í New Orleans. Þetta var gert með ljóshraða. Skólarnir voru nær allir einkavæddir og foreldrum barna fengnar ávísanir til að framvísa með hverju barni að eigin vali “á la Friedman.”


Sigurður Kári er íslenskur repúblikani og hamfarakapítalisti.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?