Ætli Guðjón Friðriksson sagnfræðingur verði ekki að einhverju leyti að endurrita bók sína um Ólaf Ragnar Grímsson og forsetaembættið í ljósi þess sem Matthías Johannessen fyrrverandi Morgunblaðsritstjóri hefur nú opinberað í dagbókum sínum á netinu?
Guðjón hefur undanfarin misseri unnið að gerð bókarinnar og kvisaðist að hætt hefði verið við að gefa hana út fyrir síðustu jól.
Kannski sem betur fer því nú gefst Guðjóni kostur á að bera það sem hann hefur að segja saman við eitt og annað sem Davíð Oddsson og fleiri hafa rætt við ritstjóra Morgunblaðsins í gegn um tíðina um forsetaembættið, Ólaf Ragnar og fjölskyldumál hans.
Heyrst hefur að bók Gujóns hafi að geyma forvitnilegar og skjalfestar upplýsingar um samskipti Ólafs Ragnars og Davíðs. (Það hlýtur allt að vera kurteislegt.)
Þá er vitað að Guðjón hefur einnig náð tali af Halldóri Ásgrímssyni þar sem hann situr á kontór ráðherranefndar Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn. Það verður að kallast gott því Halldór hefur verið ófáanlegur til þess að ræða stjórnartíð sína með Davíð við fjölmiðla eða aðra skrásetjara sögunnar en hyggst þó gera það síðar.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
