ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Hvar er umboðsmaður?

14:59 › 21. ágúst 2008

Í dag eru réttir átta mánuðir síðan Árni Mathiesen, skyndidómsmálaráðherra, skipaði Þorstein, son Davíðs Oddssonar, í stöðu héraðsdómara.


Lögskipuð dómnefnd komst að því að þrír umsækjendanna voru mjög vel hæfir, þeir Guðmundur Kristjánsson hæstaréttarlögmaður, Halldór Björnsson, aðstoðarmaður hæstaréttardómara og Pétur Dam Leifsson, lektor.


Tveimur flokkum neðar, en þó talinn hæfur var Þorsteinn Davíðsson.


Sem vonlegt var barst umboðsmanni Alþingis kvörtun úr hópi þeirra sem metnir voru hæfastir.


Embætti umboðsmanns Alþingis er brjóstvörn almennra borgara gegn geþóttavaldi stjórnarherranna. Lögum samkvæmt er því ætlað að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkisins og gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft.


Dómnefndin sagði í greinargerð sinni að Árni Mathiesen hefði farið langt út fyrir sett mörk, ákvörðun hans hefði verið ómálefnaleg og einsdæmi frá því tekinn var upp sá háttur að láta dómnefnd leggja rökstutt hæfnismat á umsækjendur.


Átta mánuðum eftir að Árni Mathiesen skyndidómsmálaráðherra tók ákvörðun sína bíður þjóðin enn eftir áliti umboðsmanns Alþingis.


Er málið svona flókið?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?