Meinfyndna klausu er að finna í dagbókarfærslum Matthíasar Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, á netinu.
Mjög mæddi á ritstjórum blaðsins árið 1998 vegna skrifa Sverris Hermannssonar, sem þá um vorið hafði verið vikið úr starfi bankastjóra Landsbankans. Sverrir fór mikinn á síðum Morgunblaðsins með gífuryrðum og stofnaði loks Frjálslynda flokkinn til þess að geta mætt óvinum sínum á þingi. Matthías segir frá því í færslu 4. júní þetta ár að Helgi S. Guðmundsson formaður bankaráðs Landsbankans og liðsmaður framsóknarmanna í fjármálageiranum hefði átt langt samtal við sig og Styrmi ritstjóra:
“Hann (Helgi S.) hafði áhyggjur af framtíð og ímynd bankans, en auk þess kvaðst hann ekki sízt hafa komið á okkar fund til að leita ráða, þ.e. hvernig hann ætti að hrista af sér þær fullyrðingar Sverris Hermannssonar sem ýmsir virtust taka trúanlegar, að hann væri hálfviti!!
Við sögðum eins og satt er að það væri erfitt að hrista slíkt af sér."
Blogg
Tvíræð dagbókarfærsla
14:44 › 19. ágúst 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
