Þetta ætlar að byrja illa hjá Hönnu Birnu. Vitsmunaflóttinn úr Framsóknarflokknum er þvílíkur að Óskar Bergsson er jafnvel enn verr settur en Ólafur F. Magnússon, eftir að hann gekk til liðs við Hönnu Birnu og hina Sjallana undir öldu mótmæla borgarbúa í upphafi ársins. Síðan þá hefur borgarstjórnarmeirihlutinn komið sér upp nýjum og áður óþekktum aðferðum við að rýja sig fylgi og trausti borgarbúa.
Óskar Bergsson hélt sjálfsagt að þetta yrði allt vandræðalaust, enda kynni hann þá list að sitja einn allt í kring um borðið. En hann rekur sig á þá köldu staðreynd að borgarbúar taka ekki mark á honum, hversu ábyrgðarfullur sem hann er á svipinn og hversu greindarlega sem hann reynir að tala. Ekki getur hann ætlast til stuðnings borgarbúa þegar nánustu samstarfsmenn hans segja sig úr flokknum með vanþóknun á vinnubrögðum hans.
Sveinn Andri Sveinsson, fyrrum borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hraunar yfir Gísla Martein í fjölmiðlum fyrir að ætlast til þess að borgarbúar borgi “borgarstjóranám” hans í Skotlandi. Fljúga heim tvisvar í mánuði á borgarstjórnarfundi og spyrja: “Missti ég af einhverju?”
Ólafur F. Magnússon upplýsir svo að Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir hafi efnt til dýrrar auglýsingaherferðar út af “Borgarbörnum” með takmörkuðu samráði við Ragnhildi Bjarnadóttur sviðsstjóra. “Þegar sviðsstjórinn gerði athugasemdir vildi Þorbjörg Helga reka sviðsstjórann sem átti allt annað skilið enda einn af traustustu og bestu starfsmönnum borgarinnar,” segir Ólafur F. Við 24 stundir í dag.
Þorbjörg segir Ólaf F. ljúga. Hún þarf engar áhyggjur að hafa. Málið verður borið undir Ragnhildi sjálfa sem enginn mun reka fyrir að segja satt.
Stjórnarkreppan í Reykjavík á sér dýpri rætur en svo að Óskar Bergsson og aðrir klækjarefir Sjálfstæðisflokksins ráði við hana. Sú kreppa snýst ekki um Bitruvirkjun eða skipulag miðborgarinnar.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
