ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Örvæntingin í borginni

09:56 › 14. ágúst 2008

Ætlar Óskar Bergsson Framsóknarflokki að ganga til liðs við Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórn Reykjavíkur og skera hann úr snörunni sem hann kom sér hjálparlaust í? Ég er ekki viss. Óskari liggur ekkert á og fyrir liggur samkomulag minnihlutans sem til varð þegar Davíð Oddsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson og Kjartan Magnússon höfðu vélað Ólaf Friðrik Magnússon í meirihlutasamstarf og látið honum eftir borgarstjórastólinn. Í pólitík er enginn vandi að brjóta slíkt samkomulag. Stundum gera menn það grátklökkir í þágu málefnanna, reknir áfram af leiðurum flokksbundinna ritstjóra Sjálfstæðisflokksins.


Annar kostur væri að veita minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins í borginni hlutleysi. Með einhverjum samningi. Það gæti Óskar gert en fengi varla viðlíka bitlinga og ef hann settist í meirihlutasamstarf. Reyndar gæti allur minnihlutinn veitt minnihlutastjórn Sjálfstæðisflokksins hlutleysi. Ekkert stendur í vegi fyrir því annað en að það væri hin endanlega niðurlæging borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins.


Tæp tvö ár eru til næstu borgarstjórnarkosninga. Ætli Framsóknarflokkurinn græði á því að fara til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn? Kannski. Hann virðist ekki hafa neitt grætt á því að sitja í minnihluta með Samfylkingu og VG.


Staða Sjálfstæðisflokksins er vonlaus og sannast sagna ber hann mesta ábyrgð á því hvernig komið er í stjórn borgarinnar. Gísli Marteinn búinn að fá sig fullsaddann og á förum úr landi.


Verði til nýr meirihluti Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í dag verður það þriðji meirihutinn sem báðir flokkarnir mynda á yfirstandandi kjörtímabili í borginni.


Samanlagt fylgi þeirra í skoðanakönnunum er litlu meira en fylgi núverandi meirihluta.  



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?