ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Opið bréf til útvarpsstjóra

00:00 › 2. júlí 2008

Svo heyrði ég fyrrum starfsmann RÚV - Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamálaráðherra – segja, að í þrengingum yrðir þú að skera niður eins og aðrir.

Nú vil ég gera þér tilboð. Eins og þú kannski veist er ég reyndur útvarpsmaður og var eitt sinn dagskrárstjóri á Rás 2 svo nokkuð sé nefnt. Einmitt þess vegna gerði ég þessari sömu Þorgerði Katrínu tilboð í fyrra með bréfi sem ég sendi henni skömmu eftir að nýju lögin um RÚV voru samþykkt.
Í fyrsta lagi óskaði ég í bréfinu eftir því að fá svolítið af opinberu fé til þess að reka útvarpsstöð með hliðstæðum hætti og RÚV ohf. gerir. Enda treysti ég mér til þess að fara í einu og öllu eftir lögunum um RÚV ohf. Ég gæti í þágu almennings og fyrir lítinn pening rekið einskonar MINI-RÚV ohf!
Þessu hafnaði Þorgerður á þeim forsendum að til væru lög sem ánöfnuðu RÚV ohf.  þriggja milljarða króna tekjum frá skattborgurunum.

Ég óskaði til vara eftir því að fá að taka Rás 2 á leigu án starfsfólks en með aðgangi að dreifikerfi og búnaði. Ég sagði Þorgerði að ég treysti mér til þess að reka Rás 2 fyrir minni pening en gert er nú. Væri það ekki fínt eins og ástatt er?
Ef þetta kæmi ekki til greina óskaði ég loks eftir því við Þorgerði að fá að taka að mér rekstur einstakra dagskrárliða fyrir minni pening en nú tíðkast.

Nú jæja. Ég fékk svar frá ráðuneyti Þorgerðar Katrínar 12. júní í fyrra, hálfu ári eftir að ég sendi bréfið (finnst þér ekki eins og mér að þetta sé dálítið langur tími?).
Um þessi erindi mín, að reka Rás 2 eða taka að mér dagskrárliði fyrir lítinn pening í þágu skattborgaranna, vildi Þorgerður Katrín og ráðuneyti hennar benda á að “lögum samkvæmt er Ríkisútvarpið ohf. sjálfstætt opinbert hlutafélag sem er óháð yfirstjórn menntamálaráðuneytisins.” Með hliðsjón af leiðbeiningarskyldu stjórnvalda vildi ráðuneytið  beina þeim hluta erindis míns sem snýr að leigu á búnaði og dreifikerfi RÚV auk dagskrárframleiðslu fyrir fyrirtækið til Ríkisútvarpsins ohf.”

Þetta er nú alveg skýrt Páll minn. Þorgerði kemur rekstur RÚV ohf. ekki við þannig að þú getur gert það sem þér sýnist. Það hefur einmitt komið fram að liðirnir 13 í lögunum um hlutverk RÚV ohf. séu svo víðir að þeir séu í raun merkingarlausir og skeri RÚV ohf. ekkert frá venjulegum einkareknum fjölmiðlum. Ég vildi bara nefna þetta við þig þannig að þú vitir að þú getur í raun gert það sem þér sýnis við RÚV ohf. Þú gætir í þessu ljósi reynt að láta RÚV ohf. þjóna almenningi frekar en til dæmis einhverjum stjórnmálaflokki eða keppa við vídeóleigur. Aðalatriðið er að þú ræður þessu sjálfur. Ég hef bréf upp á að þú mátt gera það sem þér sýnist, því eins og segir í svari Þorgerðar, þá er  “Ríkisútvarpið ohf.lögum samkvæmt opnbert hlutafélag sem er óháð yfirstjórn menntamálaráðuneytisins”.
Ég vona að þú takir tilboð mitt alvarlega. Ég vil gjarnan vinna fyrir opnum tjöldum og því sendi ég þér opið bréf.
Virðingarfyllst,
Jóhann Hauksson



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?