Geir H. Haarde forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins kemur fram sem handhafi sannleikans og segir við RÚV um lyktir Baugsmálsins og hugsanleg pólitísk afskipti af upphafi þess:
“Ég sé ekki að nokkur einasti maður eigi að segja af sér út af þessu... Hæstiréttur er búinn að ljúka þessu máli. En þó get ég sagt það, að það er af og frá að þessi málarekstur eigi sér einhverjar pólitískar rætur. Það er ákæruvaldið í landinu sem starfar óháð pólitíska valdinu sem tekur ákvörðun um að höfða þetta mál. Þá er það bara niðurstaðan.” (RÚV 6. júní. Kl. 12:20)
Geir er sami maðurinn og sagði við fjölmiðla þegar hann kynnti ný lög um fjármál stjórnmálaflokkanna 22. nóvember 2006: “Við höfum ekki neitt að fela í þessu og höfum aldrei haft.” - Við hlið Geirs stóð Kjartan Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins í aldarfjórðung.
Gott væri að ákæruvaldið, sem starfar óháð pólitíska valdinu eins og Geir segir, tæki að sé að rannsaka hvort Geir segir satt í báðum þessum tilvikum.
Ekki gerir Alþingi það.
Ekki gera fjölmiðlar það.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
