Styrmir heldur áfram: "Fyrir tæpu ári hringdi ég í Matthías og sagði við hann: Nú ætla ég að ljúka þessu áður en ég hætti. Geir Haarde er kominn klakklaust í gegn um kosningarnar, hann er búinn að mynda ríkisstjórn á eigin forsendum,sem okkur Matthíasi var annt um, og héðan í frá verður fjallað um Sjálfstæðisflokkinn með sama hætti og aðra flokka. Matthías var mér sammála og ef blaðið er lesið frá síðasta hausti til dagsins í dag er hægt að sjá að við þetta hefur verið staðið.”
Svo er nú það. Útleggingar Styrmis benda til þess að Jón Baldvin Hannibalsson hafi haft rétt fyrir sér þegar hann hyllti Styrmi á sjötugsafmæli hans í langri grein í 24 stundum. Að Morgunblaðið hafi verið Sjálfstæðisflokknum mikilvægara en Flokkurinn Morgunblaðinu.
Hvað er svo einkennilegt og dularfullt við ræðu Styrmis?
Í fyrsta lagi er sem áhrifaríkt yfirvald hafi talað. Yfirvald geislandi af sjálfsöryggi, sem fellir dóma úr hásæti sínu, tyftar fjöldann með siðrænu agavaldi og vekur með honum óttann og óöryggið sem fylgir því að kjósa ekki Sjálfstæðisflokkinn.
Hvernig var Morgunblaðið fram til síðasta hausts, áður en tengslin við Sjálfstæðisflokkinn voru endanlega rofin? Var það alltaf viðbúið í áróðursstellingum fyrir Flokkinn, tilbúið að halla réttu máli og segja ekki allan pólitíkska sannleikann í þágu Flokksins? Var það fólgið í því að stinga fréttnæmum en óþægilegum upplýsingum fyrir Flokkinn ofan í skúffu en leyfa lesendum að fá einhverja ómerkilega mola af borði ritstjórans? Er það blaðamennska? Nei, enda viðurkennir Styrmir að hafa verið partur af innsta valdakerfi Sjálfstæðisflokksins.
Hafi Sjálfstæðisflokkurinn, hið opinbera stjórnkerfi, voldug hagsmunasamtök og Morgunblaðið einhvern tíma verið samofin í öflugt og alltumlykjandi valdakerfi hefur kvarnast verulega úr því á síðari árum. Morgunblaðið er því í öðru lagi ekki það valdatæki Flokksins sem það var og því var blaðinu hvort eð er hollast að huga fyrst og fremst að því að tala máli almennings en ekki Flokksins. Löngu áður en Styrmir gaf út yfirlýsingu sína. Morgunblaðinu var nauðugur sá kostur að fara að tala máli almennings en ekki Flokksins þó ekki væri nema til þess að lengja lífdaga sína.
Nú bíð ég spenntur eftir því að út komi bók Styrmis um árin á Morgunblaðinu. Þar rennur upp stund sannleikans um olíusamráðsmálið, Jónínupóstana og gæsku ritstjórans þegar hann útvegaði Jóni Gerald Sullenberger lögfræðinginn Jón Steinar Gunnlaugsson til að höfða mál gegn Baugi. Þar verður líka sagt frá ofstækisfullum tilraunum valdakjarna Sjálfstæðisflokksins í tíð Davíðs Oddssonar til að kúga Morgunblaðið til hlýðni. Þarna verða kannski áður óbirt bréf. Já þarna verður upplýst um margvísleg spillingarmál sem aldei rötuðu inn á síður Morgunblaðsins almenningi til upplýsingar.
Þetta verður bomba. Stund sannleikans er runnin upp. Styrmir er hættur að hlífa Sjálfstæðsflokknum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
