Þegar vaxtamunur hér á landi og erlendis væri að jafnaði 10 prósent væri fall krónunnar óhjákvæmilegt.
Ekki ætla ég að fara yfir það hvernig íslenskar fjölskyldur og fyrirtæki verja þessum skuldadögum sínum með íslensku krónunni sem Geir heldur svo mikið upp á. Bendi hins vegar á að þjóðernissinnaðir og stjórnlyndir menn innan Sjálfstæðisflokksins vilja halda krónunni einmit vegna þess að þeir eru forsjárhyggjumenn og telja að fikt með krónuna jafngildi sveigjanlegri hagstjórn. Þeim væri nær að kanna hvort ekki sé samband á milli járnagans sem fylgir aðild að stóru myntsvæði og bættrar samkeppnishæfni fyrirtækja eins og raunin hefur orðið á til dæmis í Finnlandi.
Ekki er heldur að sjá að 40 prósenta fall krónunnar á fáeinum mánuðum komi í veg fyrir vaxandi atvinnuleysi.
Geir ætti að hugsa sig vel um áður en hann hefur meira fylgi af Sjálfstæðisflokknum með afturhaldssemi sinni, en flokkurinn skrapar fylgisbotninn samkvæmt niðurstöðum nýrra kannana. Og fyrir alla muni Geir: Ekki láta þingmenn og ráðherra flokksins fara að skrifa blaðagreinar til þess að hífa upp fylgið eins og lagt er til í Staksteinum Morgunblaðsins í dag. Slíkt mun innsigla fylgistap Sjálfstæðisflokksins til frambúðar.
Almenningur horfir á krónuna og Sjálfstæðisflokkinn í fríu falli. Úr þessu er þetta aðeins spurning um hvort einhver lifi fallið af.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
