ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.1° 4m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Blóðugt haust

00:00 › 19. júní 2008

Forsvarsmenn bankanna, ráðherrar og forkólfar stórra fyrirtækja fóru milli landa og reyndu að sannfæra valdamenn í viðskiptum og stjórnmálum um að hér væri allt í himna lagi. Við móðguðumst ef talað var til okkar í hæðnistóni. Já, svo bólgin vorum við að hér voru gerðar miklar skýrslur um að gera Ísland að alþjóðlegri fjármálamiðstöð. Ha, ha, ha, ha, ha, ha!
Ekkert land í veröldinni hefur orðið eins harkalega fyrir þrengingum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum og Ísland eins og greint er frá í Der Spiegel 10. apríl síðastliðnum. Við þekkjum þetta. Verðbólga upp á 13 prósent. Stýrivextir á sextánda prósent. Evran komin í 127 krónur með nýjasta falli krónunnar. Kannski eru íslensku bankarnir að taka stöðu gegn henni nú þegar styttist í sex mánaða uppgjör.Kannski líta hlutirnir betur út á pappírunum með lægri krónu.
Í umræddri Spiegelgrein hikar blaðið ekki við að segja að íslensku bankarnir hafi tekið stöðu gegn krónunni í flóknum viðskiptum til að draga úr áhættu vegna skuldsetningar erlendis. Þeir hafi selt krónur með snjöllum og tilkomumiklum hætti í framvirkum viðskiptum til þess að draga úr áhættu vegna skuldsetningar erlendis. Gróði þeirra hafi verið mikill þegar krónann féll. Spiegel nefnir að erlendar skuldir þjóðarbúsins hafi fjórfaldast á fjórum árum.
Nú er eiginlega svo komið að við við höfum fyrirgert rétti okkar til þess að halda úti sjálfstæðum gjaldmiðli. Vel kann að gengi krónunnar hafi verið of hátt skráð. En það er ólíðandi að þjóðernisrembingur íhaldsaflanna í landinu verki sem segull á vogunarsjóði og spákaupmenn heimsins. Við erum eins og börn í sandkassa þegar á reynir. Háð fóstrunum. Háð foreldrunum. Ekki Geir og Ingibjörgu, Ekki Björgólfi og Jóni Ásgeir. Við neyðumst til að kasta okkur fyrir fætur Evrópusambandsins og evrópska seðlabankans áður en langt um líður. Hvaða kjaftæði er þetta um sjálfstæði og fullveldi þegar efnahagsleg tilvera er lögð í rúst. Hvers virði er það? Þurfum við ekki einmitt Evrópusambandið og evruna til að halda sjálfstæði og einhverju af fullveldinu?
Verum auðmjúk: Sérfræðingar Danske Bank og Berlinske höfðu rétt fyrir sér.

Þetta verður blóðugt haust, enda sláturtíð.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?