Einkum er um að ræða fyrirtækin Liðsheild og Liðsinni sem keypti á sínum tíma Doktor.is af af Jórunni og fleirum árið 2006. Inpro ehf keypti síðar Liðsinni, en Inpro er í eigu Heilsuverndarstöðvarinnar ehf. Um tíma sátu Ásta Möller og Jón Þór Sturluson bæði í stjórn Liðsinnis.
Þorleifur Gunnlaugsson, fulltrúi VG í velferðarráði Reykjavíkurborgar, er ósáttur við að Reykjavíkurborg hafi gengið til samninga við Heilsuverndarstöðina ehf um rekstur félagslegra íbúða fyrir fyrrverandi áfengis- og vímuefnafíkla. Í frétt dv.is segir hann óumdeilda staðreynd að tilboð SÁÁ hafi verið um fjórðungi lægra en tilboð Heilsuverndarstöðvarinnar.
Fleiri fyrirtæki í eigu borgarinnar og nágrannasveitarfélaga eru í viðskiptum við Heilsuverndarstöðina. Má þar nefna Strætó bs. en stjórnarformaður Strætó bs er Ármann Kr. Ólafsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum meðeigandi í Inpro og Heilsuverndarstöðinni. Ármann segir sjálfur að Strætó bs. hafi verið meðal viðskiptavina Heilsuverndarstöðvarinnar áður en hann gerðist þar hluthafi. Hann mun hafa yfirgefið hluthafahópinn í Heilsuverndarstöðinni þegar ljóst var að hann yrði þingmaður Sjálfstæðisflokksins vegna mögulegra hagsmunaárekstra.
Núverandi hluthafar í Heilsuverndarstöðinni ehf eru sem hér segir: Axel F. Sigurðsson, hjartalæknir 11,58 prósent, Ágústa Guðmarsdóttir, sjúkraþjálfari 0,32 prósent, Ásta Dís Óladóttir viðskiptafræðingur og sjúkraliði 1,12 prósent, Bjarney María Hallmannsdóttir hjúkrunarfræðingur 28,71 prósent, Gestur Pétursson öryggis-, heilsu- og brunaverkfræðingur 37,86 prósent, Gísli Nils Einarsson hjúkrunarfræðingur 1,23 prósent, Heilsuverndarstöðin (eigin bréf) 6,38 prósent, Teitur Guðmundsson læknir 11,58 prósent og VSÓ 1,22 prósent.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
