(Á myndinni eru Björgólfur Guðmundsson Landsbanka og Stefán Þórarinsson Nýsi í grunni Tónlistarhússins)
Hvað verður um Eignarhaldsfélagið Portus sem annast byggingu og síðan rekstur Tónlistar- og ráðstefnuhúss í Reykjavík? Er félagið ekki að jöfnu í eigu Landsbankans og Nýsis? Eru kannski þegar komin upp vandamál við framkvæmdirnar við Reykjavíkurhöfn?
Hver er staðan hjá Árvakri sem gefur út Morgunblaðið og 24 stundir? Þarf Landsbankinn og meirihlutaeigandinn Björgólfur Guðmundsson að rétta félaginu einn milljarð króna til að bjarga útgáfunni frá hruni?
Ef fleiri svona vandamál eru vaxandi í pípunum þá er stóra spurningin þessi: Er Landsbankinn í vondum málum þar sem ofangreind félög eru með einum eða öðrum hætti tengd bankanum eða í viðskiptum við hann?
Og hvað með alla hina?




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
