Á Morgunvakt Rásar 1 í morgun hafði Geir H. Haarde eftirfarandi að segja um nýjar ESB-hneigðir Guðna Framsóknarformanns: “Hins vegar sýnist mér að Framsóknarflokkurinn sé að veikja sig mjög með sínum nýjustu ákvörðunum. Þar er nátturulega mjög erfiður klofningur innan dyra. Ein af ástæðunum fyrir því að þeir fóru illa út úr síðustu kosningum var ekki samstarfið við okkur heldur innri mein í Framsóknarflokknum. Ef þeir ætla sér að snúa sér að því að vera flokkur þeirra sem vilja ganga í Evrópusambandið, þá geta nú flestir sem það vilja bara kosið Samfylkinguna beint en fólkið út á landi, sem er á móti inngöngu í Evrópusambandið og hefur kosið Framsókn, hefur þá annað hvort okkur eða vinstri græna til að kjósa.”
Nú er eiginlega Framsóknarflokkurinn í sömu klofningshættunni varðandi ESB-aðild og Sjálfstæðisflokkurinn. Mörgum þykir sem Guðni hafi sýnt ágæta herstjórnarlist að vísa innri átakamálum flokksins yfir til hugsanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu um það “hvort” sækja skuli um aðild.
Það er von að Geir sé spældur, því þetta er sennilega sú Lilja sem hann hefði viljað kveða sjálfur til að bjarga eigin flokki frá klofningi.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
