Þannig tók Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, til orða á miðstjórnarfundi flokksins um helgina. Sagði ennfremur að ríkisstjórn Geirs Haarde væri sú aumasta frá 1990.
Hann gagnrýndi evrusinna innan Samtaka atvinnulífsins og bætti við: “Það er verkalýðshreyfingin sem talar af fullri festu og ábyrgð og segir satt, það er runnin upp ögurstund.”
Um það leyti sem Guðni talaði svo digurbarkalega yfir framsóknarmönnum var hægt að hlusta á Ólaf Darra Andrason, yfirmann hagdeildar ASÍ, gagnrýna síðustu ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokk harðlega í Krossgötum, útvarpsþætti Hjálmars Sveinssonar á Rás 1. Ríkisstjórn Guðna, Halldórs og Davíðs hafði farið illilega út af sporinu í húsnæðislánamálum mað mati Ólafs Darra. Hún hafði líka lækkað skatta með heimskulegum hætti þegar þenslan var í hámarki. “Ríkisstjórnin síðasta spilaði afskaplega illa úr þessum spilum...Breytingar hjá Íbúðalánasjóði og síðar hjá bönkunum leiddu til enn meiri þenslu...margt vann þarna á móti viðleitni Seðlabankans til að halda aftur af verðbólgunni”.
Látum samhengið dæma orð Guðna.
Hitt er alveg rétt að þjóðin bíður eftir aðgerðum af hálfu ríkisstjórnarinnar. Framtaksleysið, verkkvíðinn og geðdeyfðin er orðin afar áberandi og er farin að koma niður á fylgi Samfylkingarinnar. Jón Baldvin Hannibalsson gagnrýndi þetta einnig í vikulokaþætti á Rás 1 þennan sama dag. Sjálfstæðisflokkurinn er aftur á móti í fastri áskrift að 35 prósenta fylgi sem aldrei haggast. Þeir kjósendur færu sauðtryggir fram af hengifluginu með forystu flokksins. Eins og læmingjar.
Stóru tíðindin af miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins, sem tapaði svo gott sem 90 ára kjölfestu sinni í þingkosningunum í fyrra, eru þau, að formaður flokksins opnaði glufu í átt að Evrópusambandinu. Nú væri nauðsynlegt að dýpka umræðuna. Taldi meira að segja að til greina kæmi að spyrja 12 þúsund flokksmenn um Evrópumálin í einskonar póstatkvæðagreiðslu. Því ekki?
Þau falla vígin eitt af öðru. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður flokksins, ESB- og evrusinni, hefur á endanum betur. Með hægðinni og festunni og hjálp Jóns Sigurðssonar, fráfarandi formanns flokksins, sem nú vill sækja um aðild.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
