ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Kreppa meirihlutans í borgarstjórn

00:00 › 31. maí 2008

Blasir ekki við að Guðmundur á að taka ábyrgð á ruglinu sem kjörnir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bera í raun mesta ábyrgð á? Rugli, sem rætur átti í óljósri hugmyndafræði meirihluta Sjálfstæðisflokksins um útrás á vegum OR og samstarf dótturfyrirtækis þess REI við félög í einkaeigu. Ekki bætti sundurlyndið, óeiningin og forystukreppan úr skák. Meirihluti Vilhjálms Þ. féll þegar Björn Ingi Hrafnsson gekk til liðs við Tjarnarkvartettinn. Hann entist í 100 daga eins og allir vita, eða þar til Kjartan Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson komu Flokknum aftur til valda með borgarstjórnanum sem borgarbúar vilja ekki.

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavíkurborg er rúinn trausti og ætlar að ganga seint að endurheimta tiltrú kjósenda. Nærri þriðjungur  þeirra sem þó ætla enn að kjósa Sjálfstæðisflokkinn eru hundóánægðir með störf hans í meirihlutanum.
Sumir borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins hafa hamrað á því að fyrirtæki í eigu borgarbúa (OR og REI) eigi ekki að keppa við einkafyrirtæki og alls ekki að taka áhættu. Er þetta ný kenning? Er ekki almenningur alltaf að taka áhættu, nú síðast á 500 milljarða króna láni fyrir ríkið? (Þráinn Bertelsson talar um að landsmenn hafi verið skráðir allir með tölu í hollvinafélag einkabankanna með lántökunni miklu).
500 milljarða lánið er myndbirting þess að einkamarkaðurinn getur ekki gengið einn og óstuddur. Um síðir leitar hann í nauðum til almannavaldsins. Akkerman, aðalbankastjóri Deutsche Bank, viðurkenndi þetta á dögunum í Financial Times.
Hér er eitt snoturt dæmi um útrás og áhætturekstur í einu nágrannalanda okkar, hjá frændum okkar Svíum: Orkufélagið Vattenfall AB hefur á síðustu árum fjárfest verulega í raforkuframleiðslu og dreifingu í Þýskalandi. Þar er Vattenfall orðið eitt stærsta raforkufyrirtækið í landinu og sér til dæmis allri Berlínarborg fyrir rafmagni.

Þessi “útrás” hófst fyrir allmörgum árum en þó eftir að Svíar gengu í ESB 1995.
Hjá Vattenfall AB starfa milli 30 og 40 þúsund manns í fimm löndum.
Vattenfall AB er 100 prósent eign sænska ríkisins. Stjórnarmenn eru 15 til 17, koma úr ýmsum greinum en kjörnir af fulltrúum eigendanna, sem er sænskur almenningur.
Hvernig stendur á því að útrás fyrirtækis í opinberri eigu og áhættan sem henni fylgir stendur ekkert í frændum okkar Svíum?
Það væri kaldhæðnislegt í meira lagi ef vandinn sem veldur fylgishruni Sjálfstæðisflokksins í höfuðborginni  reyndist aðeins vera heimatilbúinn gervivandi byggður á heimóttarlegu rugli, þekkingar- og reynsluleysi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?