Það er rétt að stjórnmálaflokkar eiga að móta stefnu, kynna hana og leyfa fólki að taka afstöðu til hennar. Um það snýst málið. – En hvað um flokk sem neitar að hafa stefnu af ótta við klofning? Er hann ekki líklegastur til að fylgja “status quo”? Beita flokksaganum?
Jónas Kristjánsson, fyrrverandi ritstjóri, segir um þetta á vef sínum www.jonas.is/ að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafi lent í hakkavél flokksmaskínunnar: “Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur hefur verið sagt fyrir verkum. Hún hefur því lýst yfir andstöðu við aðild að Evrópusambandinu. Sjálfstæðið þéttir vörnina með því að siða varaformanninn. Björn Bjarnason telur, að umræða um aðild sé hættuleg. Hún muni skaða flokkinn, leiða til átaka og síðan kljúfa flokkinn. Björn tjaldar öllum pakkanum, talar sem kontról-frík flokksins. Og Geir sjálfur sagði ótvírætt og án skýringa, að aðild sé vond.
Málsmetandi sjálfstæðismaður sagði við mig um helgina að “ESB-umsóknarhópurinn” væri orðinn mjög fjölmennur innan Sjálfstæðisflokksins. En á sama tíma væri lýðræðið á útleið þar innan veggja. “Menn þora ekki að tjá sig um ólýðræðisleg vinnubrögð þegar á reynir.”
Menn voru reknir úr kommúnistaflokkum austantjalds hér áður fyrr ef þeir gengu ekki í takt og þar með var framtíð viðkomandi ráðin. Milan Kundera lýsir þessu vel í “Brandaranum” fyrstu skáldsögu sinni:
“Hann sagði mér frá því hversu erfitt það hefði verið að fá leyfi, eftir tvö ár til að ljúka háskólanáminu. Hvernig brottrekstur hans úr Flokknum hafði brennimerkt hann í lífinu. Tortryggnin sem hann mætti alls staðar... Síðan nefndi hann nokkra kunningja sem voru í svipaðri stöðu og hann sjálfur. Hann fullyrti að fylgst væri með þeim og að orð þeirra væru vandlega skráð niður. Að allir í kring um þá væru spurðir spjörunum úr, þessi eða hinn einlægi eða illkvittni vitnisburðurinn gæti sem hægast kostað þá nokkur ár af leiðindum í viðbót.” (bls. 180- 181)




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
