ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Átti að krefjast afsagnar

00:00 › 18. maí 2008

Gunnar Tómasson ritar: "Ég var að hlutsta á upptöku af Silfri Egils.

Andrés Magnússon sagði handtökuskipun hafa verið gefna út á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni í kjölfar húsleitar embættis ríkislögreglustjóra hjá Baugi.

"...og þær eru ekki gefnar út að gamni sínu" bætti hann við til skýringar.
(les: "og menn gefa þær ekki út að gamni sínu.")

Kannski þetta hafi komið fram áður, en fréttin um handtökuskipunina kom mér algjörlega á óvart - og lá nærri að kuldahrollur færi um mig af ástæðu sem í stuttu máli er þessi:

Ríkislögreglustjóri Haraldur Jóhannessen braut lög og rétt á Jóni Ásgeiri Jóhannessyni með útgáfu handtökuskipunar á hendur honum.

Málsatvik voru þessi:

1. Í beiðni embættis ríkislögreglustjóra til Héraðsdóms Reykjavíkur um heimild til húsleitar var vísað til meintrar debet-nótu Jóns Gerhards Sullenbergers sem nokkurs konar "smoking gun" sönnun um glæpsamlegt athæfi af hálfu Baugsmanna.

2. Nokkrum mínútum eftir innrás laganna varða í húsakynni Baugs leiðrétti Tryggvi Jónsson misskilning embættismanna Ríkislögreglustjóra - umrædd nóta var kredit-nóta. (Þ.e.a.s., Jón Gerhard lýsti sig vera í skuld við Baug - og því gat ekki verið um að ræða tilraun af hálfu Baugsmanna að stela andvirðri meintrar debet-nótu úr sjóðum Baugs eins og ráða mátti af beiðni embættis ríkislögreglustjóra til Héraðsdóms Reykjavíkur.)

3. Ríkislögreglustjóri Haraldur Jóhannessen hafði því engar forsendur til að gefa út handtökuskipun á hendur Jóni Ásgeiri vegna meintrar tilraunar til að stela peningum frá Baugi fyrir milligöngu Jóns Geralds.

4. Nokkrum mínútum eftir innrás embættis ríkislögreglustjóra í húsakynni Baugs lá því ljóst fyrir að heimild embættisins til húsleitar var fengin á fölskum forsendum.

5. Ef handtökuheimildin hafði verið gefin út áður, þá lá einnig ljóst fyrir að forsenda hennar byggðist á misskilningi - og því bar ríkislögreglustjóra skylda til að afturkalla hana.

6. Ef handtökuheimildin var gefin út eftir að misskilningurinn hafði verið leiðréttur, þá bar dómsmálaráðherra Birni Bjarnasyni eiðsvarin skylda til að krefjast afsagnar ríkislögreglustjóra Haraldar Jóhannessen þegar í stað eftir að hann tók við embætti dómsmálaráðherra 2003. 

7. Baugsmálið varðar stórfelld brot á íslenzkum lögum og stjórnarskrá:

(a) æðstu menn ákæruvaldsins eiga ekki að gefa út handtökuskipun á hendur þegnum landsins á fölskum forsendum, og

(b) eiga samstundis að segja af sér embætti ef þeir gera það að gamni sínu," segir Gunnar Tómasson.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?