Gunnar Tómasson hagfræðingur hefur bent á forvitnilegan samjöfnuð sem sýnir betur en margt annað hversu fáránleg forréttindalögin eru og hversu gróflega þau fara gegn almennri skynsemi og jöfnum rétti borgaranna. Stjórnarherrar skjóta sér til að mynda á bak við það að ekki sé að afnema eftirlaunaréttindi sem þegar eru orðn virk; slíkt sé brot á eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar.
Gunnar hefur í þessu sambandi bent þingmönnum á eftirfarandi:
“Friðhelgi eignarréttar:
72. gr. Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.
...anno 1983... Lög um afnám verðtryggingar launa: Friðhelgi eignarréttar launþega fer eftir atvikum...
...og anno 2008... Hugmyndir um afnám lífeyristrygginga alþingismanna o.fl.: ...en friðhelgi eignarréttar alþingismanna o.fl. er absolut.”
Í ljósi þessa spyr Gunnar: “Fer stjórnarskrá Íslands í manngreiningarálit?”
Von að spurt sé.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
