ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Fordæmi Hæstaréttar

00:00 › 12. maí 2008

Einmitt af þessum sökum vildi Valgerður Bjarnadóttir, varaþingmaður Samfylkingarinnar, ekki taka upp þennan þátt málsins með þingsálykturnartillögu sinni á yfirstandandi þingi. Hún og meðflutningsmenn á Alþingi vildu ekki tefja málið með lagaþrætum og álitamálum af þessum toga.

En bíðum við. Nú vill svo til að Hæstiréttur hefur með nokkrum dómum á undanförnum misserum staðfest skerðingu á eftirlaunum fyrrum starfsmanna Seðlabankans. Nokkrir þeirra höfðuðu mál vegna skerðingar sem upphaflega varð til við hlutafélagavæðingu og síðar einkavæðingu Landsbankans sem greiddi í sameiginlegan sjóð með Seðlabankanum. Þar var innsti koppur í búri Kjartan Gunnarsson þá framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og formaður bankaráðs Landsbankans.
Ég býst svo sem ekki við að þeir sem njóta forréttinda í krafti hinna umdeildu eftirlaunalaga þyki fýsilegt að höfða mál verði lögunum breytt og áunnin eignarréttindi skert rétt eins og hjá starfsmönnum Seðlabankans sem nú þiggja skert eftirlaun samkvæmt dómi Hæstaréttar.
Hið makalausa er að dómarnir um skerðingu eftirlauna fyrrum starfsmanna Seðlabankans eru kveðnir upp af dómurum sem njóta eftirlaunaforréttinda samkvæmt hinum umdeildu lögum. Var einhver að tala um vanhæfi?

Einn þeirra sem tapaði máli sínu fyrir Hæstarétti var Sveinbjörn Hafliðason, fyrrverandi aðallögfræðingur Seðlabankans. Hann ritaði grein um málið í Morgunblaðið 23. febrúar 2006 og beindi meðal annars orðum að Davíð Oddssyni, þá nýjum formanni bankastjórnar Seðlabankans: “Nú hefur nýlega verið skipaður nýr formaður bankastjórnar í stað þess sem gegndi því embætti á umræddum hremmingartímum starfsmanna. Það hlýtur að vera krafa starfsmanna sem hagsmuna eiga að gæta í þessum efnum að honum sé kynnt tilurð og staða þessara mála án undanbragða. Eða er þörf á því? Hann ætti að þekkja málið þar sem einn af hans nánustu samstarfsmönnum, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins þá og nú, fór fremstur í flokki til að níða á ódrengilegan hátt af starfsmönnum Seðlabankans og fleirum áunnin réttindi sem ekki virðast njóta réttarverndar hérlendis, sbr. niðurstöður dómstóla.”

Þeim sem áhuga hafa á dómum Hæstaréttar, sem staðfestir skerðingu á virkum eftirlaunaréttindum eins og að drekka vatn, er bent á dómasafn Hæstréttar, meða annars dóminn í máli Sveinbjörns Hafliðasonar og Jóhanns Ingjaldssonar fyrrum aðalbókara Seðlabankans, en þar er einnig að finna forvitnilegt sérálit dómara.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?