ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Tvíhöfðanefndir og klofnir flokkar

00:00 › 21. apríl 2008

“Skýrsla Evrópunefndar verði grundvöllur nánari athugunar á því hvernig hagsmunum Íslendinga verði í framtíðinni best borgið gagnvart Evrópusambandinu. Komið verði á fót föstum samráðsvettvangi stjórnmálaflokka á Alþingi sem fylgist með þróun mála í Evrópu og leggi mat á breytingar út frá hagsmunum Íslendinga. Nefndin hafi samráð við innlenda sérfræðinga og hagsmunaaðila eftir þörfum.”
Til hægðarauka eru þau orð skáletruð hér að ofan sem Valgerður vildi fá í teskeiðum frá Ingibjörgu Sólrúnu. Á henni mátti skila að hún væri vantrúuð á að nýskipuð þverpólitísk evrópunefnd skilaði einhverjum árangri.
Ingibjörg vildi gefa nefndinni kost á að hefja störf; hún hefði óbundnar hendur.

Valgerður kallaði nefndina tvíhöfðanefnd líkt og eldri nefnd á vegum sömu stjórnmálaafla á tíunda áratugnum. Sú átti að endurskoða kvótakerfið. Fyrir henni fóru Þröstur Ólafsson og Vilhjálmur Egilsson. Ekkert var gert með tillögur hennar. Illu heilli, því nú hefur þjóðin orðið uppvís að mannréttindabrotum í nafni kvótakerfisins.
Annars gaf Ingibjörg til kynna að Framsóknarflokkurinn talaði samtímis tveimur tungum um Evrópumál í fjölmiðlum. Guðni hér og Valgerður þar. Rétt eins og flokkurinn væri tvíhöfða: Guðni talar gegn ESB og evru en Valgerður er þveröfugrar skoðunar.

Ætli bændur í norðausturkjördæmi séu ánægðir með ESB-afstöðu Valgerðar?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?