Við sjáum hvað setur. Að vilja Alþingis verður kannski búið að selja Sjónvarpið og Rás 2 áður en fyrsta hallalausa árið verður gert upp. Almannamiðill landsmanna verði aðeins Rás 1, fréttastofa og netmmiðill með aðgang að menninarverðmætum í eigu almennings. Allt án auglýsinga! Sjónvarp og Rás 2 eru í eðli sínu og í samhengi dagsins árið 2008 ljósvakamiðlar sem stjórnast af verslunarhyggju sem á og verður að lúta samkeppnislögmálunum. Um þetta er vafalaust hægt að ná breiðri pólitískri samstöðu, ekki síst vegna þess að unnt verður að draga úr útgjöldum ríkisins um tvo milljarða króna á ári og efla í leiðinni sanngirni og almenna samkeppni á sviði fjölmiðlunar.
Eigendur RÚV ohf, borgarar þessa lands, hafa líka annað í höndum eftir aðalfund félagsins. Heildarlaun og þóknanir til ellefu æðstu stjórnenda RÚV ohf námu 45 milljónum króna á fimm mánuðum. Þar af námu heildarlaun útvarpsstjóra á þessu tímabili 7,7 milljónum króna. Sem gerir 1.540 þúsund krónur á mánuði. Þá eru liðlega 37 milljónir eftir fyrir hina tíu, en það gerir að jafnaði 740 þúsund krónur á mann á mánuði.
Gefum okkur samt að dagskrárstjórnarnir tveir, Þórhallur Gunnarsson og Sigrún Stefánsdóttir, fái samanlagt tvær milljónir á mánuði í heildarlaun og þóknanir (ómögulegt að segja hvernig upphæðin skiptist). Þá verða þeir átta sem eftir eru með 700 þúsund á mánuði að jafnaði. Líklegt er að fjármálastjóri, tæknistjóri og markaðsstjóri séu yfir þessu og fái yfir 800 þúsund krónur á mánuði í heildarlaun og þóknanir. Þá ættu heildarlaun og þóknanir fréttastjóra og þriggja annarra yfirmanna í þessum hópi að vera um 600- 650 þúsund krónur að jafnaði á mánuði. Í raun og veru eru þessar upplýsingar frá RÚV fullnægjandi nema ef ske kynni að grunur leiki á að RÚV brjóti jafnréttislög í launagreiðslum til dagskrárstjóranna. Ritstjóri "visir.is" hefur óskað eftir upplýsingum um laun þeirra einmitt af þeirri ástæðu.
En úr því rætt er um RÚV: Hvernig stendur á því að ákveðið var að uppgjörsár RÚV ohf verði það sama og kvótaárið þ.e. frá hausti til hausts ári síðar? Átti RÚV eitthvað bágt með að birta tekjur og gjöld síðustu fjóra mánuði ársins? Er einhver rökrétt skýring?
Af hverju eru nýju ársreikninarnir ekki birtir á vef Ríkisútvarpsins?




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
