Gísli Marteinn telur að nú sé tímapunkturinn til þess að gefa slíkar yfirlýsingar. Ólafur F. borgarstjóri segir allt byggt á misskilningi og ummæli Sjálfstæðismanna séu ekki í takt við stefnu meirihlutans, niðurstöður stýrihópa og svo framvegis.
Eru Gísli Marteinn og Kjartan ekki menn í sama flokki og þeir stjórnarherrar sem telja nú sjálfsagt að nota skattfé almennings til að hlaupa undir bagga með bönkum sem þessi sami flokkur og sömu menn einkavæddu fyrir nokkrum árum? Á þar að nota almannafé í áhættusöm verkefni?
Almenningur er á endanum alltaf látinn bera ábyrgð, borga brúsann. Það er ekki í nein önnur hús að venda. Hugmyndir Kjartans og Gísla Marteins og raunar annarra Sjálfstæðismanna ganga út á að einkaaðilar eigi að fá tækifæri til að njóta gróðans; einkavæða gróðann en þjóðnýta tapið.
Gísli Marteinn og Kjartan vita ekkert hvert þeir eru að fara og finna að einkavæðingarfrjálshyggjuraupið gengur ekki upp. Sem gerir ekkert til því það er á undanhaldi eins og vísir menn fjármálaheimsins leggja nú áherslu á. Má benda á Ackermann, aðalbankastjóra Deutsche Bank í því sambandi. Hann telur að frjáls markaður geti greinilega ekki gengið óstuddur þegar á reyni. Hann þurfi leiðsögn og stuðning frá almannavaldinu eins og aðsteðjandi fjármálakreppa beri vitni um.
Gísli Marteinn og Kjartan hefðu gott af því að fara næst til Berlínar. Varla gengju þeir lengi um götur þar án þess að sjá byggingar og mannvirki í eigu Vattenfall AB. Hvað er það?
Vattenfall er með stærstu orkuframleiðendum og orkusölum innan Evrópusambandsins, líklega með 15 til 20 prósenta hlutdeild í Þýskalandi. Vattenfall sér allri Berlínarborg fyrir rafmagni og sömuleiðis Varsjá, höfuðborg Póllands svo nokkuð sé nefnt. Fyrirtækið er sænskt og hefur verið í bullandi útrás undanfarin ár. Það er 100 prósent í eigu sænska ríkisins og tekst á hendur áhættusöm verkefni á erlendri grundu. Þetta hlutafélag í ríkiseigu vinnur á almennum raforkumarkaði innan Evrópusambandsins og er þar í samkeppni við önnur orkufyrirtæki. Stjórnarmenn eru fimmtán, allir fulltrúar almennings með einum eða öðrum hætti. Ekki er vitað til þess að ESB, sænskir skattgreiðendur eða sænskir stjórnmálamenn séu að fara á límingum vegna þessarar útrásar Vattenfall AB.
Hér heima á Íslandi fara ábúðarmiklir kjörnir fulltrúar almennings um allar jarðir í útrásarleikjum á orkusviðinu, koma svo heim og segja allt í plati. Nei, ekki megi lengur hætta almannafé.
Orð og gjörðir þessara ungu Sjálfstæðismanna í borgarstjórn eru móðgun við almenna skynsemi, líka þeirra sem eru með greindarvísitölu fyrir neðan 80. Orð þeirra eru merkingarlaus. Óskiljanleg.
Samkeppniseftirlitið kemst svo að því að OR megi ekki eiga nema þriggja prósenta hlut í Hitaveitu Suðurnesja. Annað sé ógnun við samkeppnina. Hvaða samkeppni? Er ekki verið að smíða frumvarp sem segir að veitufyrirtækin eigi að vera óskipt í eigu almennings? Með leyfi að spyrja: Hvaða opinberu aðilar fá að kaupa hluti í HS? Bannaði Árni Mathiesen fjármálaráðherra og Baldur Guðlaugsson ráðuneytisstjóri hans ekki opinberum fyrirtækjum að kaupa hlut ríkisins í HS á sínum tíma?
Þetta er jafn óskiljanlegt og yfirlýsingar Gísla Marteins og Kjartans.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
