ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Aftökur nútímans

00:00 › 16. apríl 2008

Svipað er upp á teningnum í öðrum raunveruleika- fegurðar- og hæfileikaþáttum samtímans. Tyra Banks, stjórnandi “Americas Next Top Model”, sem sýndir eru á Skjá einum, er iðin við að segja grátandi unglingsstúlkum til syndanna. Sýna þeim fram á í beinni útsendingu hvernig þær ná ekki máli, séu of venjulegar, séu “ekki neitt” og verði ekki neitt.
Eins er þessu farið með aðra raunveruleikaþætti. Venjulegt fólk er niðurlægt ef það gerir mistök, hefur ekki nægjanlegan styrk, nægilega gott útlit og svo framvegis.

Þegar deilur hófust um áðurgreindan stjörnuleitarþátt í þýskum fjölmiðlum var harðneskja stjórnandans  og “töffaraskapurinn” eitthvað mildaður. Hið merkilega gerðist að mjög dró þá úr vinsældum þáttarins. Áhorfendur vildu fá eitthvað afgerandi og  krassandi. Eitthvað niðurlægjandi: “Beygjum fólk í duftið í beinni. Horfum á það grenja.” Það rifjast upp texti bandaríska trúbadorsins Arlos Guthrie á plötunni Alice’s Restaurant: “Look at that guy. You see that he’s got it worse than you and it makes you feel better”.

Hvernig er þessi siðblindi ofstopi samtímans til kominn? Gegnir hann einhverju hlutverki í nútímanum? Er þetta aðeins partur af því að hið einkalega er á undanhaldi. Allt er opinbert og fyrir allra augum en um leið ópersónulegt?
Sterk rök hníga að því að þarna sé á ferðinni enn ein nýjung nútímasamfélagsins til þess að hafa taumhald á fjöldanum. Kúga hann til hlýðni við yfirvald. Venja hann við, að til þess að þroska sjálfsvitundina, verða sjálfstæður og  þroskaður einstaklingur sem nýtur mannlegrar virðingar og reisnar, þurfi menn að komast í gegn um nálaraugað. Raunveruleikaþættirnir vinna þannig gegn sjálfsstyrkingu fjöldans, einkum ungmenna: “Beygðu þig undir reglur verslunarhyggjunnar um útlit þitt, kynlíf, lífstíl og væntingar. Gráttu ella í beinni og kysstu tær útsendara verslunarhyggjunnar, þáttastjórnendanna, áður en þú gengur af sviðinu beigður og niðurlægður og hverfur inn í fjöldann. Þar munt þú týnast fyrir fullt og allt. Þar verður þú eins og grár fjöldinn: formlaus, án einstaklingseðlis, án sjálfstjáningar, kúgaður af yfirvaldi nútímasamfélagsins. Hinum  nýju tyftunarmeisturum samtímans á skjánum.
Frá því auðsveipni var innprentuð almúgafólki á miðöldum með svipunni og börnum með kennarapriki hefur taumhaldið og undirokunin tekið á sig nýtt form. Í stað líkamlegs ofbeldis kemur niðurlægingin í beinni, skömmustukenndin er ræktuð og stríðalin í raunveruleika- og hæfileikaþáttum. Svipuhöggin dynja á sjónvarpsheimilunum í formi niðurlægingar á skjánum. Grátur og gnístran tanna. Á miðöldum var almúginn hvattur til þess að horfa á aftökur sér til “skemmtunar”.  Bað hann ekki líka um eitthvað krassandi þegar þrælum var kastað fyrir ljón á leikvöngum Rómarveldis?

Krassandi aftökur nútímans fara fram í raunveruleika- og stjörnuleitarþáttum samtímans. Raunveruleg áhrif þeirra liggja í því að þeir sýna almúgafólki að þýðingarlaust er að rísa gegn valdinu. Til þess að njóta sjálfstjáningar og þar með áhrifa og virðingar skalt þú standast próf verslunarhyggjunnar á skjánum. Í beinni. Annars ertu glataður, grátandi, kúgaður og fullur skömmustukenndar. Formlaus og sviptur möguleikum til sjálfsstjórnar.
Byltingarsinninn Bubbi Mortens tekur þátt í þessari svipulausu kúgun.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?