Þar munu menn segja eitthvað á þessa leið. “Tja, þið eruð með EES samning og komin hálfa leið inn í sambandið hvort eð er. Okkur líkar að vísu ekki vel við íslenska stjórnmálamenn en Íslendingar eru útsjónasamir og duglegir upp til hópa og hafa þanið sig út á undanförnum árum. Við bjóðumst til að kippa ykkur inn í ESB með hraði þannig að þið getið farið að vinna að því að taka upp evru fljótlega. En þið verðið að sæta því að fara í einu og öllu eftir skilmálum sem við setjum ykkur fyrstu misserin. Ykkur eru mislagðar hendur við peningamálastjórn og með allt niður um ykkur. Vextir himinhrópandi háir, krónan fallin og þar með kaup launafólks. Verðbólgan í tveggja stafa tölu og svo mætti áfram telja. Þið uppfyllið engin skilyrði fyrir inngöngu. Meira að segja smáríki í austanverððri Evrópu skjóta ykkur ref fyrir rass. En við ætlum sem sagt að sjá aumur á ykkur áður en þið komið rekstri fyrirtækja á Íslandi fyrir kattarnef og hrekið íbúana af landi brott með óstjórn og klaufaskap. Eiginlega gerum við þetta bara til að koma í veg fyrir að þið streymið öll yfir á meginlandið. Það er ódýrara fyrir okkur að kippa ykkur inn í ESB í hvelli en að bíða eftir þeim ósköpum.”
Blogg
Sögnin að haardera
00:00 › 15. apríl 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
