ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Atli Rúnar og gangaborinn

00:00 › 12. apríl 2008

Orðrétt segir á bloggsíðu Atla: “Hið eina sem reyndar vantaði í „fréttina“ að austan í hádeginu var hvort Austfirðingarnir ætluðu sér að kaupa líka Kínverjana sem stjórna bornum? Einhver verður jú að vinna verkið og ekki nokkur íslensk sála hefur komið nálægt því að stjórna svona tæki og það er aðeins meira en keyra Fíat á milli húsa. Það má hins vegar segja sem svo að gott sé að eiga jarðgangabor á hlaðinu ef menn eiga á annað borð gras af seðlum og stóra drauma. Gaman væri líka að eignast geimfar og hafa í túninu heima fyrir vestan eða norðan. Það verður ábyggilega frétt morgundagsins.”

Atli Rúnar hefur með öðrum orðum enga trú á þessu brambolti Austfirðinga við að halda síðasta gangabornum af hálendinu til samgönguverkefna eystra. Í hans sporum mundi ég ekki flýta mér að afskrifa neitt þótt ég geti að sumu leyti tekið undir sjónarmið hans um tómlæti og blindu  íslenskra blaða- og fréttamanna. Sjálfur flutti ég fréttir af aðdraganda Eyjabakka- og síðar Kárahnjúkaverkefnisins, þá fréttamaður eystra á vegum RÚV. Ég skal viðurkenna að ég var lengi vel mjög vantrúaður á að stórvirkjunin yrði að veruleika. Ég talaði við marga, meðal annars verkfræðinga, sem sögðu að þetta væri bara úrlausnarefni og væri tæknilega ekkert mál. Samt var ég vantrúaður.

Nú hef ég enn á ný talað við trúverðugt kunnáttufólk eystra sem ég treysti vel. Það telur nær 100 prósent öruggt að takast muni að halda bornum áfram hér á landi og hefja borun jarðganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, en græna ljósið er komið á þau göng.

Því spyr ég Atla Rúnar: Á ég að vera vantrúaður líkt og forðum þegar ég reyndist hafa rangt fyrir mér um verkefni sem er líklega tuttugufalt kostnaðarsamara?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?