ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Sannlíki Seðlabankans

00:00 › 11. apríl 2008

Það er illa gert af Seðlabanka í tilvistarkreppu, að dreifa illa rökstuddum óhróðri um íslenskan fasteignamarkað. Það er í sjálfu sér engu betra en athæfi vogunarsjóða sem Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, telur að hafi reynt að hagnast stórkostlega með því að dreifa vísvitandi röngum upplýsingum um íslenskan fjármálamarkað. Er Davíð vísvitandi að gera örvæntingarfullt áhlaup á húsnæði almennings í landinu með því að nota síðasta snefil trúverðugleika bankans til að setja fram dómsdagsspá um fasteignamarkaðinn? Lærði hann trixið af vogunarsjóðunum og dreifir nú órökstuddum upplýsingum um fasteignir almennings til að ná fram verðbólgumarkmiðum sínum.
Hagfræðingar Seðlabankans vita eins vel og aðrir landsmenn að íslenskur fasteignamarkaður er sérstakur að því leyti að landsmenn eiga sjálfir íbúðir sínar. Að minnsta kosti á pappírunum. Lítið ber á spákaupmennsku eins og bent hefur verið á. Þegar sverfur að dregur einfaldlega úr viðskiptum, markaðurin þornar upp, fólk heldur að sér höndum en reynir sitt til að halda í horfinu, greiða af lánum sínum o.s.frv. Verðið kann að lækka eittvað, en rýrnar þó fyrst og fremst að raungildi í verðbólgu sem Seðlabankinn ræður ekki við.
Seðlabankinn getur sagst vera boðberi válegra tíðinda og ekki sé auðvelt að vera í því hlutverki. En hvað ef boðskapurinn er grundaður á geðþóttalegu og órökstuddu rugli? Hagfræðingar og sérfræðingar fjármálastofnana hrista hausinn og eru hættir að trúa eins og fréttir bera með sér þessa dagana.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?