Ein leiðin er að ganga í Evrópusambandið og fella niður verndartolla, vörugjöld og annað það sem heldur uppi verði á innlendum landbúnaðarafurðum.
Því er gjarnan haldið að íslenskum kjósendum að aðild Íslands að Evrópusambandinu muni valda íslenskum bændum miklum búsifjum.
Fyrir tæpu ári ræddi ég við Peter Lundberg, sérfræðing hjá sænsku Bændasamtökunum í Stokkhólmi. Sem kunnugt er gengu Svíar í Evrópusambandið árið 1995 og studdu sænsku bændasamtökin aðildina af heilum hug. Hvers vegna?
“Breytingum fylgir áhætta en sænskum landbúnaði líður betur innan Evrópusambandsins en utan þess,” sagði Peter í viðtali sem birt var í DV í maí í fyrra.”
Og skyldu sænskir bændur hafa séð eftir að ganga í ESB? “Nei, alls ekki. Okkur finnst enn að ákvörðunin hafi verið rétt. Við erum einnig fullviss um að sænskum landbúnaði vegnar betur nú en honum hefði annars vegnað utan sambandsins,” sagði Peter.
Fram kom í þessu sama viðtali að bæði innflutningur og útflutningur á búvörum hefði aukist í Svíþjóð frá inngöngunni í ESB. Og þess utan næmu styrkir ESB til sænskra bænda um 90 milljörðum króna á ári.
Hvað skyldi Peter Lundberg hafa ráðlagt íslenskum bændum í þessu viðtali?
“Ég mundi mjög gjarnan vilja sjá Íslendinga og Norðmenn ganga í Evrópusambandið. Þannig gætum við þróað og samhæft samvinnu landanna enn frekar innan sambandsins. Það bendir allt til þess að norskur og íslenskur landbúnaður geti átt góða framtíð innan Evrópusambandsins,” sagði Peter Lundberg.
Svo er nú það.
Blogg
Bjóða íslenskum bændum í ESB
00:00 › 4. mars 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
