ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Ógöngur dagskrárstjórans

00:00 › 31. mars 2008

RÚV ohf. er einnig með sérstakt leyfi til að keppa um auglýsingafé við fjölmiðla á almennum markaði ólíkt því sem víða gerist um rekstur almannaútvarps. 
Nú vill hvorki Þórhallur né Páll Magnússon, útvarpsstjóri, verða við sambærilegum kröfum ritstjóra www.visir.is  um að birtar verði upplýsingar um laun dagskrárstjóranna á RÚV þótt svo að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hafi komist að .þeirri niðurstöðu að hinu opinbera hlutafélagi beri að láta upplýsingarnar í té. Enda er RÚV háð upplýsingalögum.
Halldór Blöndal, fyrrum ráðherra og þingmaður, vekur athygli á þessu í eftirtektarverðri grein í Morgunblaðinu í gær. Hann bendir á orðasveim um að RÚV brjóti jafnréttislög og undir slíkum grun geti RÚV illa legið og “alls ekki ef haft er í huga hversu hart það hefur gengið fram til að upplýsa mál af þessum toga, þegar aðrar stofnanir eiga í hlut.”
Halldór virðist nokkuð forviða á “kotrosknum” viðbrögðum Þórhalls sem vill stýra því sjálfur hvenær persónulegar upplýsingar um hann séu birtar.
Á hluthafafundum eru framkvæmdastjórar og aðrir æðstu yfirmenn ekkert spurðir að því hvort hluthöfum sé gerð grein fyrir launakjörum þeirra. Þeir fá þær upplýsingar í hendur þegar og ef fram á það er farið.
Páll og Þórhallur ættu að hafa í huga að hluthafar í RÚV ohf. eru allir skattgreiðendur í landinu. Úr buddu skattborgaranna koma laun þeirra. Frá valdastofnun kjósendanna, löggjafarþinginu, koma reglurnar sem þeir eiga að kynna sér og fara eftir.


Það er hárrétt hjá Halldóri Blöndal að það er óþolandi að uppi skuli dylgjur um að innan RÚV séu jafnréttislög ekki virt. Enda væntir Halldór þess að á aðalfundi Ríkisútvarpsins ohf. “verði þessum málum gerð skil og skýrt, hvernig stjórnin fylgist með því, að markmiðum laganna sé fylgt”.
Í ljósi þessa verður að líta svo á að Þórhallur Gunnarsson hafi með hótunum um lögsókn og ákveðnum hroka gert sig sekan um alvarleg herfræðileg mistök.


Um nokkurra ára skeið var ég sjálfur dagskrárstjóri Rásar 2 með sérstaka ábyrgð á landshlutastöðvum RÚV. Ef það gæti hjálpað Páli og Þórhalli eitthvað að leiðrétta kúrsinn og koma fram við eigendur RÚV af kurteisi og þjónustulund get ég nefnt að áður en ég sagði upp störfum hjá RÚV snemma árs 2005 voru heildarlaun mín líkast til um 430 þúsund krónur á mánuði. – Síðan þá hafa verið gerðar skipulagsbreytingar, meðal annars þær að nú er einn dagskrárstjóri yfir Rás 1 og Rás 2 en ekki tveir. Því starfi gegnir Sigrún Stefánsdóttir. Setjum sem svo að laun hennar séu 7 – 800 þúsund krónur á mánuði hjá RÚV ohf.  Þá er aðeins einni spurningu ósvarað: Er Þórhallur með sambærileg laun? Eða brýtur RÚV ohf. jafnréttislög? Það er frétt ef svo er.


Hvernig er það annars: Eiga fréttastofur RÚV ohf. eitthvað bágt með að flytja fréttir af þessu máli?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?