ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Valdhroki eða heimska?

00:00 › 27. mars 2008

Í frétt Stöðvar 2 í gær, 26 mars, kemur fram að fréttastofan hafi margra blaðsíðna bréf Árna undir höndum, en þar er að finna svör hans við spurningum sem umboðsmaður hefur lagt fyrir hann vegna skipunar Þorsteins Davíðssonar í dómaraembættið. Þar er haft orðrétt eftir Árna: „Athygli vekur að spurningar yðar eru mjög ítarlegar í framsetningu og með því yfirbragði og orðavali að svo virðist sem afstaða yðar til úrlausnarefnisins kunni að vera mótuð fyrirfram... Af þeim sökum má halda því fram að svör sem undirritaður ber fram hér að neðan komi til með að hafa takmarkaða þýðingu þegar þér leysið úr málinu...”

Það var og! Á nú að gera umboðsmann tortryggilegan til að fegra ósvífna valdspillingu Árna? Skyldi Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri Árna í fjármálaráðuneytinu og reglubróðir Davíðs Oddssonar úr Eimreiðarhópnum, hafa bent  Árna á að fara sömu leið og Davíð gerði forðum sem forsætisráðherra: að snupra umboðsmann Alþingis? Kannski eru fingraför föðurins sjálfs á þessu. Hver veit. Enn skal reynt að kúga umboðsmann til undirgefni.  

Einkennilegt hvað eftirlit í nafni kjósenda fer í taugarnar á ráðherrum Sjálfstæðisflokksins. Þeir þola ekki að að eftirlits- og rannsóknarembætti þjóðþingsins, umboðsmaður og ríkiendurskoðandi, hafi með þeim eftirlit í nafni kjósenda. Þó verður æ augljósara að full þörf er á slíku eftirliti til að uppræta djúpstæða og sjálfgefna spillingu þar sem Flokkurinn notar hið opinbera til þess að tryggja völd sín og kalla fram hlýðni og undirgefni með umbunum og refsingum. Það gera ráðherrar Flokksins purkunarlaust með stöðuveitingum eða útilokun frá embættum og opinberum verkefnum gangi menn ekki í takt og veifi flokksskírteinum.

Framganga Árna ber annað hvort vott um valdhroka eða heimsku. Skilur hann ekki að kvörtunarefni hæfustu umsækjendanna um dómaraembættið til umboðsmanns Alþingis eiga einmitt rætur í grunsemdum um að fyrirfram gefin sjónarmið hans sjálfs og Flokksins hafi ráðið vali hans í embætti hérðasdómara?

Þingmenn og ráðherrar Samfylkingarinnar, sem áður töluðu sig hása gegn spillingu á Alþingi, þegja þunnu hljóði. Ætlar Helgi Hjörvar, málshefjandinn um símhringingu Davíðs á Alþingi á vormánuðum 2004, að þegja nú? Ekur bloggóratorinn Össur sér í ráðherrastólnum og dæsir af vellíðan en segir ekki neitt? Hvar er formaður Samfylkingarinnar sem gekk svo hart fram gegn eftirlaunafrumvarpinu á sínum tíma? Var ekki meiningin að skúra svolítið í stjórnarráðinu? Munu þau taka litinn af sessunautum sínum í ríkisstjórn og sitja stutt?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?