Ritstjórar ættu ekki að skipta mikilvægum upplýsingum í tvennt líkt og Styrmir Gunnarsson, ritstjóri Morgunblaðsins gerir. Annars vegar í upplýsingar sem óhætt er að leyfa almenningi að lesa og meta. Hins vegar upplýsingar sem unnt er að nota í eiginhagsmunaskyni, fyrir Flokkinn eða vinina í innvígðri og innmúraðri veröld.
Ritstjórinn gengur ekki á undan með góðu fordæmi. Hann hefur ekki í heiðri eftirfarandi nútímalegar siðareglur blaðamanna sem Jónas Kristjánsson hefur snarað á íslensku á eftirfarandi hátt: "Skuldbinding blaðamennskunnar er fyrst og fremst við sannleikann. Hollusta hennar er við borgarana. Eðli hennar er leit að staðfestingum. Hún er sjálfstæð gagnvart þeim sem fjallað er um. Hún er óháður vaktari valdsins. Hún er torg gagnrýni og málamiðlana. Hún reynir að gera það mikilvæga áhugavert og viðeigandi. Hún er víðtæk og í réttum hlutföllum. Hún má beita eigin samvisku."
Blaðamenn sem vandir eru að virðingu sinni kjósa nú einn af öðrum að yfirgefa Morgunblaðið einmitt af þessum ástæðum; ritstjórinn gefur ekki gott fordæmi. Nú blasir við að Þorsteinn sé einnig fallinn í þennan pytt fortíðarinnar, reglubræðranna sem kusu hið innvígða forræði Flokksins sem skammtaði almenningi réttar upplýsingar.
Þegar birtir voru í Fréttablaðinu tölvupóstar um samskipti Kjartans Gunnarssonar, Styrmis Gunnarssonar og fleiri í aðdraganda Baugsmálsins haustið 2005 neyddist Styrmir til að halda fund með starfsfólki sínu til að halda ærunni. Á þeim fundi bar Egill Ólafsson, blaðamaður á Morgunblaðinu til margra ára, upp svofellda spurningu til ritstjórans (efni fundarins var birt í Morgunblaðinu):
"Þú hefur stjórnað fréttaflutningi af Baugsmálum á sama hátt og af olíumálum og frumkvæði innlendrar fréttadeildar hefur verið sáralítið. Við getum haft ýmsar skoðanir á fréttaflutningi Fréttablaðsins en eins og þetta blasir við mér ert þú orðinn þátttakandi í Baugsmálinu. Getur þú eftir sem áður haldið áfram að stýra fréttaflutningi okkar af þessum málum?"
Og hverju skyldi nú Styrmir hafa svarað blaðamanni sínum:
“Verð ég aðili að málinu bara af því að Fréttablaðið tekur upp á því að setja mál í rangt ljós? Ég tel að svo sé ekki og tel það fráleitt að ég sé aðili að málinu þótt ég hafi hjálpað ungum manni að fá lögfræðing sér til ráðuneytis. Ég er ritstjóri þessa blaðs í umboði stjórnar Árvakurs og eini ábyrgðarmaður blaðsins. Ég mun ekki afsala mér neinu ritstjórnarvaldi varðandi málefni Baugs.”
Spurningin er hvort Þorsteinn Pálsson þorir að koma sér út úr þessari veröld sem var. Segja sannleikann um samtal sem hann í tímaritinu Herðubreið er sagður hafa átt við Styrmi daginn fyrir húsleitina frægu í höfuðstöðvum Baugs. Afhjúpa spillinguna, baktjaldamakkið og klíkuþjóðfélagið.Eða geta þeir einir sagt sannleikann sem aldrei hafa tekið þátt í spillinguni?
Það er vitaskuld ömurlegt hlutskipti ritstjóra að verða sjálfur partur af því máli sem fjölmiðill hans fæst við að afhjúpa.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
