Ekkert þýðir að jagast í Birni Inga Hrafnssyni, Framsóknarflokki. Hann er horfinn á braut.
En hvað um Hauk Leósson, fyrrverandi stjórnarformann OR í nafni sjálfstæðismanna? Hann er líka horfinn á braut.
Þá er bara einn eftir. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjórinn sem hrökklaðist frá völdum snemma vetrar en leiddi Ólaf F. til hásætis í undarlegri hallarbyltingu í borgarstjórn í síðasta mánuði.
Átti að skilja orð Ólafs F. í dag á þann veg að hann hygðist launa Vilhjálmi Þ. borgarstjórastólinn með því að snúa baki við honum? Láta hann axla ábyrgð (sem er væntanlega hið eina rökrétta samkvæmt niðurstöðum REI skýrslunnar)?
Ólafur svíkur Margréti Sverrisdóttur. Ólafur svíkur Dag B. Eggertsson. Ólafur F. svíkur Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson (kannski). Ólafur F...
Eða er líklegra að Ólafur F. komi fram og segi: Ég varð fyrir því að Margrét sveik mig. Ég varð fyrir því að Dagur B. sveik mig. Ég varð fyrir því að Vilhjálmur Þ. þurfti að axla ábyrgð.
Svandís Svavarsdóttir kom fram í Kastljósi í kvöld (7. feb.) og sagði þverpólitíska samstöðu ríkja um eiginlega allflest er varðar REI-málið. Lofar betrun og bót, meira gagnsæi og virkara lýðræði. Hún sagði að það væri ekki sitt að dæma menn, kalla einhverja til ábyrgðar á REI-klúðrinu þótt lögfræðingar kæmust að þeirri niðurstöðu að umboð borgarstjóra (Vilhjálms Þ.) til að gera samninga um framtíð REI hafi ekki verið fyrir hendi eða óljóst.
Þetta er rangt hjá Svandísi. Ábyrgð axlar enginn í þessu máli samkvæmt lögfræðiáliti eða dómsúrskurði. Ábyrgð axla stjórnmálamenn iðulega í samræmi við pólitíska niðurstöðu. Smávægilegar yfirsjónir tveggja ráðherra við kaup á barnapössun og vangoldin afnotagjöld af sjónvarpi í nokkur ár kostaði tvo ráðherra embætti á fyrstu vikum ríkisstjórnar Fredriks Reinfeldts í Svíþjóð haustið 2006. Það var pólitísk ákvörðun en ekki dómsúrskurður. Pólitíska ábyrgð eiga stjórnmálamenn ýmist við samvisku sína eða flokkinn sem þeir vinna fyrir. Þetta á Svandís að vita.
