Ráðuneyti fjármálaráðherra afsakar sig með því að ekki hafi tekist að ljúka gerð tveggja kaupsamninga á síðasta ári. Af hverju tókst það ekki? Eru Magnús Gunnarsson, Árni Sigfússon og Stefán Þórarinsson, stjórnendur Þróunarfélagsins ekki vanir menn?
Það kemur sem sagt Árna Mathiesen í koll nú að hafa 8. maí í fyrra, skömmu fyrir þingkosningarnar, afsalað sér réttinum til afskipta af gerð kaupsamninga á vegum Þróunarfélagsins. Í yfirlýsingu Geirs H. Haarde forsætisráðherra 22. október í fyrra vegna mikillar umræðu um spillingu við sölu almenningseigna á Keflavíkurflugvelli stendur skrifað meðal annars: “Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. hefur reglulega upplýst bæði fjármálaráðuneytið og forsætisráðuneytið, sem handhafa hlutabréfs ríkisins í félaginu, um fyrirkomulag sölu á eignum og önnur verkefni félagsins. Þá er rétt að geta þess að fjármálaráðherra gaf Þróunarfélaginu 8. maí s.l. almennt umboð til sölu fasteigna þannig að hver einstök sala hefur ekki verið borin upp við fjármálaráðherra til samþykktar.”
Ekki hefur verið upplýst hvers vegna Árni Mathiesen afsalaði sér eftirlitshlutverkinu með sölu almenningseigna. Hann hefði betur látið það ógert því nú situr hann kannski í súpunni.
En kannski hætti Árni (kjörinn fulltrúi almennings) afskiptum af sölu almenningseigna á Keflavíkurflugvelli til þess að þurfa ekki að koma nálægt sölu eigna til bróður síns Þorgils Óttars Mathiesen og annarra flokkssystkina í kjördæmi sínu.
Kjósendur bíða í með eftirvæntingu eftir úttekt Ríkisendurskoðunar á sölu almenningseigna á Keflavíkurflugvelli.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
