ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Þversögn Þorgerðar

00:00 › 3. febrúar 2008

Þorgerður Katrín er með öðrum orðum fús til þess að taka enn eitt skerfið í átt að Evrópusambandinu þó ekki væri nema til þess að draga úr þrýstingnum um inngöngu Íslands í ESB og upptöku evrunnar sem gjaldmiðils. Nú er að bíða og sjá hvort Sjálfstæðisflokkurinn klárar málið fyrir sitt leyti og ber á borð einhverjar tillögur fyrir samstarfsflokkinn í ríkisstjórn.

Eitthvað er Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokki og formaður utanríkismálanefndar, pirraður vegna meintra yfirlýsinga Samfylkingarfólks um að Íslendingum sé best borgið innan ESB. Slíkt tal sé farið að vekja athygli úti í Brussel og það sé ekkert sniðugt.

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sagði í Silfri Egils, að engin eining væri innan stjórnmálaflokkanna um aðildarumsókn að ESB og ef umsókn yrði tekin á dagskrá mundi það valda klofningi í Sjálfstæðisflokknum. Á honum var að skilja að ekkert gerðist í þessu efni næstu 10 árin.

Eitthvað virðist erfitt að ganga í takt í Valhöll þessa dagana og fróðegt væri að heyra hver raunveruleg stefna forystu Sjálfstæðisflokksins er í þessu efni. Leiðinlegt fyrir íslensk stjórnmál ef rétt reynist sem Gunnar Smári Egilsson hélt fram í Silfri Egils, að íslenskir stjórnmálamenn gerðu aldrei neitt gagn, en þvældust fyrir og tefðu framfarir.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?