ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Dularfulla bókarhvarfið

00:00 › 28. febrúar 2008

Vefur dv.is kannaði málið í nóvember síðastliðinum, meðal annars hjá Amazon.com sölunetinu og Foyles, sem er ein stærsta bókaverslunin í London. Þá þegar höfðu útgáfudagar eins og 31. október og 5. nóvember sést á vefnum. Á vef Foyles var gefið til kynna að bókin kæmi í verslunina 31. janúar.
Nú segir á sama vef að bókin hafi átt að koma út  4. febrúar síðastliðinn. En jafnframt: “Availability uncertain. Typical delivery time is 1-3 weeks but varies by publisher,”  eða að óvíst sé að bókin fáist og afhending geti dregist allt að þrjár vikur, mismunandi eftir bókarútgáfum.
Bókartitilinn kemur fyrir á amazon.com bóksöluvefnum og þar pantaði ég hana fyrir nokkru án nokkurra athugasemda. Síðan fékk ég tölvupóst frá amazon.com  með eftirfarandi texta þann 19. þessa mánaðar: “Though we had expected to be able to send this item to you, we've since found that it is not available from any of our sources at this time.  We realize this is disappointing news to hear, and we apologize for the inconvenience we have caused you. We have cancelled this item from your order.” Sem merkir um það bil: “Við höfðum vænst þess að geta sent þér umrædda bók en höfum nú komist að því að bókin er ekki fáanleg hjá neinum þeirra sem við skiptum við. Okkur er ljóst að þessar fréttir valda þér vonbrigðum og biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið þér. Við höfum nú fellt pöntun þína niður.”
Á vefsíðu amazon kemur nú eftirfarandi fram: “Availability: Currently unavailable. We don't know when or if this item will be back in stock.”
Getur einhver útskýrt þetta dularfulla hvarf bókarinnar sem hefur verið einhvers staðar í pípunum í hálft ár eða svo?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?