Fall sitt rekur Vilhjálmur til fjölmiðlanna sem nú slást um að birta söguna alla. Já voru það ekki þeir sem bókstaflega framleiddu harmsöguna? Þurftu svo ekki sumir þeirra að biðjast afsökunar?
Vilhjálmur nýtur einskis trausts í nýrri skoðanakönnunum. En Geir segir að sjálfstæðismaður verði borgarstjóri eftir ár og Vilhjálmur þakkar Davíð stuðninginn. “Við erum gamlir vinir og samstarfsmenn.”
Og Mogginn snýr seglum sínum. Þar stendur í leiðara dagsins: “Hinn nýi borgarstjóri hefur farið vel af stað í embættinu. Hann forðast sýndarmennsku og er greinilega staðráðinn í að láta verkin tala... Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur unnið það afrek að koma Sjálfstæðisflokknum til valda á ný í Reykjavíkurborg. Nú verður það hans hlutverk að leiða borgarstjórnarflokkinn til farsællar ákvörðunar um framhaldið.”
Eftir ár verður Vilhjálmur borgarstjóri á ný. REI-málið verður horfið í ómælisdjúp gleymskunnar. Um hvað snérist það aftur? Er ekki tekið að snjóa yfir það nú þegar?
Öll er þessi framvinda einkennileg og eiginlega yfirskilvitlegt. Borgarbúar gefast upp á þvarginu og snúa sér að undarlegum Júróvisjóndeilum. Kannski eru þær skemmtilegri, rökréttari og ekki eins mannskemmandi.
Hvað sagði ekki Halldór Laxness: “Því hefur verið haldið fram, að Íslendingar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðhengilshátt og deila um tittlingaskít, sem ekki kemur málinu við, en verði skelfingu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.”




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
