Í grein í Fréttablaðinu í dag segir Þorvaldur að aðeins ein björgunaraðgerð komi til greina af hálfu ríkisins ef bankarnir kalla eftir hjálp; tímabundin endurþjóðnýting þeirra! Þetta hafi verið gert í bankakreppunni á Norðurlöndum árin 1988 til 1993 og nú síðast með Northern Rock-bankann í Bretlandi.
Og hér er svo rúsínan í pylsuendanum hjá Þorvaldi: “Hafi bankarnir farið sér svo óðslega að þeir reynist hreinlega gjaldþrota eins og Jón Ásgeir Jóhannesson ýjaði að, hlýtur einkavæðing þeirra að teljast hafa mistekist svo hrapallega að nauðsyn beri til að koma bönkunum í betri hendur og draga núverandi eigendur þeirra til ábyrgðar frekar en skattgreiðendur eða saklausa vegfarendur. Fari svo, hefur mikill vaxtamunur – háir útlánsvextir, lágir innlánsvextir – í vernduðu fákeppnisumhverfi ekki dugað bönkunum til að spjara sig og ekki heldur forgjöfin til eigendanna sem fólst í einkavæðingu bankanna langt undir markaðsverði að mati Ríkisendurskoðunar.”
Já veislan er búin. Viðskiptaleiðtogar nýrrar kynslóðar skila nú einkaþotunum og lækka við sig kaupið á hluthafafundum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
