ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Kviksyndið

00:00 › 11. febrúar 2008

Umboðsmaður skimar vandræðalega í kring um sig eftir borgarstjóra. Honum er bent út á kviksyndið þar sem Ólafur F. marar í hálfu kafi. Hann spyr um Vilhjálm og aftur er bent út á kviksyndið. Umboðsmaður bregður á það ráð að rétta Degi B. umslagið með þeim orðum að það hafi að geyma álit embættisins á REI-málinu. Um leið og hann kveður kallar hann til Davíðs: “Þú fyrirgefur, en ég var ekki við þegar þú hringdir í mig fyrir helgi. Hvað lá þér á hjarta?”

Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík virðist haldinn sjálfseyðingarhvöt á háu stigi. Nema flokksforystunni finnist sem allar bjargir séu bannaðar og staðan verði hvort eð er ekki verri en hún er nú. Við þær aðstæður er líklegt að íhaldssamir menn kjósi að gera ekki neitt. 
Sannarlega eru aðstæður borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins þröngar.
Í fyrsta lagi hefur Tjarnarkvartettinn heitið því að koma honum hvergi til hjálpar í fjölþættum vanda sínum vegna REI-málsins,  Ólafs F. og Vilhjálms Þ. Þetta var undirstrikað og ítrekað af Degi B. Eggertssyni og Svandísi Svavarsdóttur um helgina.
 Í öðru lagi er erfitt að láta Vilhjálm víkja án þess að finna einhvern sem leitt getur borgarstjórnarfokkinn. Átök frammi fyrir kjósendum um arftaka Vilhjálms eru ekki líkleg til þess að afla flokknum kjósenda eða vinsælda.
Ef Vilhjálmur stígur af sviðinu situr í þriðja lagi borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins uppi með Ólaf F. Magnússon, einangraðan og landlausan borgarstjóra, sem flokkurinn kærir sig væntanlega ekkert um að verði leiðtogi og ímynd meirihluta sem borinn er uppi af Sjálfstæðisflokknum. 
Í fjórða lagi hangir yfir Vilhjálmi skýrsla umboðsmanns Alþingis um Orkuveitu Reykjavíkur og REI-málið. Umboðsmaður átti frumkvæði að því að taka REI-málið til athugunar sem eitt og sér er athyglisvert. Hlutverk umboðsmanns er að hafa eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal hann gæta þess að jafnræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög og vandaða stjórnsýsluhætti, eins og segir í lögum um embættið. Af því sem nú þegar hefur verið leitt í ljós um REI-málið er fullvíst að skýrsla umboðsmanns verður svört.
Í fimmta lagi er Sjálfstæðisflokkurinn í rauninni klofinn niður í rót varðandi afstöðu til eignarhalds á veitufyrirtækjum og orkulindum. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins keppast við að segja Reykvíkingum að þeir vilji að orkulindir og veitufyrirtæki verði í eigu Reykvíkinga um alla tíð. Ekki er þetta trúverðugt á sama tíma og þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sest ofan á frumvarp iðnaðarráðherra um þjóðareign á orkulindum. Vitað er að stór hluti sjálfstæðismanna er í hjarta sínu á móti þjóðareign í hvaða mynd sem vera skal og hefur það sem sérstakt pólitískt markmið að efla séreignarrétt og einkavæða auðlindir. Geir H. Haarde, leiðtogi flokksins hefur að vísu komið fram í fjölmiðlum og sagt mæðulega að nú um stundir blésu vindar gegn slíkum áformum í þjóðfélaginu og flokkurinn ætlaði ekki að beita sér fyrir einkavæðingu orkufyrirtækja.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?