Leyfist mér að vitna hér í pistli eftir Dr. Þorvald Gylfason hagfræðiprófessor. Ástæðuna færð þú lesandi góður upp gefna hér í lokin:
"Óstjórn efnahagsmálanna lýsir sér meðal annars í því, að ítrekuðum tillögum til Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar um að efla gjaldeyrisforðann í góðærinu var ekki sinnt. Nú loksins eftir dúk og disk rjúka menn upp til handa og fóta og kunna þá ekki önnur ráð en að taka lán í útlöndum til að auka forðann...
Seðlabankanum er að svo stöddu varla treystandi fyrir aðgangi að gjaldeyrisforða annarra seðlabanka eða auknum forða yfirleitt með þeim skuldbindingum, sem þá væru lagðar á íslenzka skattgreiðendur...
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lýsti þeirri skoðun í nýlegri skýrslu, að gengi krónunnar þyrfti að lækka mun meira en orðið er. Ég er sama sinnis...
Bankastjórn Seðlabankans veldur ekki lögbundnu hlutverki sínu, hvorki því að stuðla að stöðugu verðlagi né hinu að stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Seðlabankinn stóð með tvær hendur tómar, þegar viðskiptabankarnir þurftu á sýnilegum bakhjarli að halda. Bankarnir stóðu því berskjaldaðir og birtust umheiminum sem hinir einu í Evrópu án aðgangs að þrautalánveitanda í gjaldgengri mynt. Ef bankastjórn Seðlabankans fæst ekki til að segja af sér af sjálfsdáðum, þarf Alþingi að leysa hana frá störfum."
Þetta eru sem sagt brot úr pistli sem Þorvaldur ritaði í Fréttablaðið 22. maí árið 2008!!!




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
