ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Björgvin átti að fara í fússi

12:53 › 6. desember 2008

Geir H. Haarde, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Björgvin G. Sigurðsson hafa öll tjáð sig í fjölmiðlum í dag.

Allt ber að sama brunni í málflutningi þeirra: Ekkert þeirra ber ábyrgð og voru jafnvel ekki á vettvangi þegar bankakerfið féll.  Geir felur sig sem fyrr á bak við þá lagahyggju að hann beri aðeins þá ábyrgð sem kann að vera leidd í ljós í rannsókn sem hann hefur sjálfur fyrirskipað og verið með puttana í að undirbúa.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ber ekki einusinni ábyrgð á RÚV ohf. "Þetta er bara stjórn og forstjóri í fyrirtæki úti í bæ sem ég treysti," segir hún efnislega þegar allt er komið á hausinn á 20 mánuðum. Lögfræðingurinn Þorgerður Katrín hefur ekki lesið lögin um ráðherraábyrgð frá 1963 sem hvíla á 14. grein stjórnarskrárinnar.

Björgvin G. Sigurðsson bankamálaráðherra var ekki hafður með í ráðum fyrstu 3 daga bankahrunsins. Í siðuðu þjóðfélagi hefði hann sagt af sér mánudaginn 29. september með látum og sakað Seðlabankann um afglöp. Hann hefði knúið bankastjórnina frá með gjörð sinni. Með því hefði hann rifið íslensk stjórnmál upp úr sínum spillta og úrelta farvegi slímsetunnar í ráðherrastólum klíkuþjóðfélagsins. Hann hefði skráð nafn sitt á blöð sögunnar.

Á mestu örlagatímum íslenska fjármálakerfisins var í bakherbergjum verið að þjóna hagsmunum fárra innan Flokksins.
Franski stjórnmála- og lögfræðingurinn Maurice Duverger gerði merka rannsókn á starfi stjórnmálaflokka fyrir 60 árum. Hann hefði allt eins getað verið að skrifa um Sjálfstæðisflokkinn þegar hann ritaði eftirfarandi í formála sinnar merku bókar:


“Tilveran innan flokksins er vísvitandi sveipuð dulúð. Það er ekki auðvelt að afla nákvæmra gagna um stjórnmálaflokka, ekki einu sinni um undirstöðuatriði. Þetta er líkt og að vera ofurseldur frumstæðu regluverki þar sem launung ríkir um lög og helgisiði og hinir innvígðu halda þeim kirfilega leyndum fyrir hinum sem fyrir utan standa. Aðeins gamalreyndir varðmenn hafa nauðsynlega vitneskju um hvað er á seyði innan flokksins og um slóttugt leynimakk sem þar fer fram. Þessir menn hafa á hinn bóginn sjaldan til að bera þá vísindalegu hugsun sem gerir þeim kleift að halda nauðsynlegri hlutlægni. Og þeir tala ekki fúslega.”

Má ég biðja Geir H. Haarde og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur um að hafa yfir eftirfarandi orð Jóns Þorlákssonar stofnanda Sjálfstæðisflokksins áður en þau fara að sofa á kvöldin:


“Það er gott að vera vinur vina sinna, ekki nema loflegt, að skólastjóri sýni lærisveinum sínum rausn eða flokksforingi fylgismönnum, eftir sinni getu. En takmörk eru dregin milli hins leyfilega og óleyfilega í þessu sem öðru. Af eigin efnum eða með frjálsu fengnu fé verður lausnin að ljúkast, svo að leyfilegt sé. Lyklar að ríkisféhirslunni eru engum fengnir til þess að að sækja þangað vinargjafir eða fylgdarlaun.”

Kannski ættu Björgvin og Ingibjörg Sólrún að gera það einnig.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?