Kæri Einar Már
Ég las grein þína í Morgunblaðinu (4. des.) um "Alþjóðlega gjaldeyrisfullveldið".
Þú veldur mér vonbrigðum.
Með fullri virðingu: Ertu ekki búinn að sökkva sjálfum þér full djúpt ofan í skotgrafirnar með Davíð og Steingrími J. í tortryggninni gagnvart öðrum þjóðum? Evrópusambandinu?
Ertu nokkuð að ganga í heimastjórnarflokkinn?
Hvaða arðrán fer fram í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi á vegum ESB sem ekki fer fram í Noregi og á Íslandi sem standa utan?
Mundu að íslenskir kapítalistar gerðu heiðarlega tilraun til að "arðræna" aðrar þjóðir í nafni útrásarinnar. Flytja ágóðann heim.
Mundu að skattar Kaupþings stóðu undir rekstri allra framhaldsskóla og háskóla í landinu um tíma.
Mundu að Samherji hefur sölsað undir sig allan úthafsveiðikvóta Breta.
Mundu að tugir þúsunda Breta eru í vinnu hjá íslenskum kapítalistum.
Mundu að íslenskir ólígarkar eiga D'Angleterre.
Mundu að íslenskir kaupsýslumenn eru meðal umfangsmestu byggingarverktaka og fasteignabraskara í Lettlandi. Framleiða auk þess matvæli og fleira í landinu.
Mundu að fulltrúarnir sem við kjósum eiga að vera með réttu ráði og setja kapítalistunum leikreglurnar. Kapítalistarnir fara alltaf eins langt og þeir geta. Engin tíðindi það.
Fyrir alla muni Einar Már: Ekki sökkva þér ofan í þjóðernisofstæki og fullveldisjálfstæðisföðurlandsást.
Mundu það sem Tony Benn sagði í mynd Michaels Moore, að kapítalistar hræðist aðeins eitt: "Fólkið sjálft".
Vertu ekki reiður út í þjóðir sem líta á okkur sem barbara. Því það erum við. Við kunnum ekki að hegða okkur í samfélagi við siðaðar þjóðir. Kölluðum yfir okkur hryðjuverkalög og yfirhalningu ESB um grundvöll trúnaðar og trausts í samskiptum milli þjóða.
Virtu þær 300 til 400 milljónir einstaklinga innan ESB sem telja hag sínum betur borgið í náinni samvinnu við nágranna sína og vini.
Verum ekki hræddir við aðrar þjóðir.Fólkið þar hlær á sömu stöðum, grætur á sömu stöðum, græðir á sömu stöðum, tapar á sömu stöðum.
Lestu þessi orð Uffes Ellemans Jensen fyrrverandi utanríkisráðherra Dana:
„Það er leitt að allir vinir mínir á Íslandi skuli vera komnir í þessa klípu. Því gagnstætt því sem margir hafa álitið hef ég ekki átt erfitt með að sjá tilganginn í útrás íslenskra framtaksmanna. Íslendingar vinna meira en flestir aðrir og fara miklu nær því en aðrar Norðurlandaþjóðir að vera sjálfum sér nægir. Svo eru þeir haldnir sjálfstæðisþörf sem einangrar þá á sama tíma og þeir þarfnast samtöðu með efnahagslegu og pólitísku samfélagi við aðrar þjóðir... Hugsið ykkur ef Ísland hefði verið í Evrópusambandinu og með evruna þegar markaðirnir frusu... Gjaldið sem Íslendingar greiða nú er gjaldið fyrir að það að vilja standa einir.“ (Berlingske Tidene 14. október sl.)
RESPECT!
Jóhann Hauksson




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
