ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.9° 6m/s E
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Geggjað, ekki satt?

22:12 › 29. desember 2008

Áður en þú kynnir þér höfund og titil textans hér að neðan skalt þú renna í gegn um hann þér til fróðleiks og yndisauka lesandi góður:

"Í leitinni að einhverjum samkomulagsgrundvelli hefur verið gripið til þess örþrifaráðs, að kuðla saman hinum tveim prinsípum almenningsrekstursins og einkarekstursins. Árangurinn er eins og við var að búast. Það hefur verið framkvæmd kerfisbundin þjóðnýting - á skuldum einstaklingsframtaksins. Almenningsfé er látið standa undir tapi séreignarfyrirtækja, bæði stórra og smárra, þúsundum saman, til sjós og lands."

Og svo þetta um ríkisstjórnina:

"Það er ekki styrk hennar að þakka, að henni hefur ekki verið steypt, heldur veikleika andstæðinganna, ráðþrota atvinnurekenda á barmi gjaldþrots, örvinglaðra spákaupmanna, hræddra sparifjáreigenda og vörulausra kaupmanna, manna sem oft eru fulltrúar mjög ólíkra hagsmuna, þótt þeir hangi á einhverri óljósri bylgjulengd innan sama flokks; þessir menn hafa enga þjóðlega borgaramenningu sem siðferðisbakhjall, eða andlegar erfðir sem geti gefið þeim stolt eða reisn í örvæntingunni, en varaliðið umhverfis þennan bága flokkskjarna eru rúnir bændur og reittir smáborgarar, sem lifa í þeirri fánýtu blekkingu, að vonandi sé auðvaldið sterkt og muni bjarga þeim!"

Lesandi góður: Þetta er úr grein sem Halldór Laxness ritaði árið 1936. Hún birtist í greinasafninu "Dagleið á fjöllum".

Og hvað skyldi greinin heita sem svo kaldhæðnislega gæti átt við í dag:

"Samfylkingin er málstaður fólksins".

Geggjað, ekki satt?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?