Hannes Hólmsteinn Gissurarson veit að þriggja áratuga frjálshyggjuskeiði er lokið.
Í Skírni, tímariti Hins íslenska bókmenntafélags, ritar hann grein um ósigur frjálshyggjunnar. Hann setur spurningarmerki aftan við orðið.
Það er óþarfi.
Það er líka óþarfi af honum að kenna Pál Skúlason, Þorvald Gylfason og Stefán Snævarr við sósíalisma. Það ber vott um þráhyggju. Í grein sinni beinir hann orðum sínum til þessara þriggja prófessora en allir hafa þeir gagnrýnt frjálshyggjuna.
Áhangendur frjálshyggjunnar hafa verið við völd í landinu undanfarin 17 ár undir merkjum Sjálfstæðisflokksins.
Enginn stjórnmálaflokkur hefur gengið jafn langt í því að úthluta frelsi til útvalinna í jafn langan tíma. Enginn stjórnmálaflokkur hefur beitt jafn miklu stjórnlyndi og forsjárhyggju í jafn langan tíma í sérhagsmunavörslu fyrir útvalda. Nema ef vera kynni Framsóknarflokkurinn.
Hannes Hólmsteinn var um árabil gerður út af Landssambandi íslenskra útvegsmanna til þess að boða fagnaðarerindið um íslenska kvótakerfið um heim allan.
Sautján árum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn fékk því framgengt að unnt yrði að veðsetja óveiddan fisk í sjó skuldar útgerðin samanlagt 900 milljarða króna.
Einkavæddir bankarnir eru aftur komnir í ríkiseign.
Svo kann að fara að þjóðin verði að leysa til sín kvótann aftur þar sem kvótagreifar eru ekki lengur borgunarmenn fyrir slíkri skuld.
Þjóðin mun þá einnig eignast erlendar skuldir kvótagreifanna.
Þjóðin mun þurfa að borga þá skuld árum saman.
Þjóðin mun gjalda fyrir að hafa afhent kvótann útvöldum til veðsetningar í nafni frjálshyggjunnar.
Hannes Hólmsteinn hnjóðar í prófessorana þrjá í grein sinni og segir: "Ef til vill skiptir minnstu máli hvað menntamenn segja um kapítalismann. Þrátt fyrir allt þeirra tal þoka framtakssamir menn lífskjörunum fram á hverjum degi."
Er Hannes Hólmsteinn að tala um kvótagreifana sem skulda 900 milljarða króna sem velt verður yfir á herðar almennings?
Getur verið að Hannes Hólmsteinn, sérhagsmunagæsluflokkurinn og kvótagreifarnir og hafi misskilið eitthvað um frelsið?
Blogg
Örvænting Hannesar Hólmsteins
22:59 › 2. desember 2008
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
